Skinfaxi - 01.06.1973, Blaðsíða 20
Blómlegt íþróttastarf
í Eiðaskóla
Íþróttalíf stendur með miklum blóma
í Eiðaskóla, og raunar allt félagslíf. í
skólanum er starfandi Ungmennafélag,
Umf. Eiðaskóla, og mun það vera eina
ungmennafélagið sem er starfandi í hér-
aðsskólum landsins.
íþróttakennari á Eiðum er Hermann
Níelsson. íþróttanefnd skólans sendi
Skinfaxa nokkrar myndir af íþróttaflokk-
um í ýmsum greinum sem kepptu fvrir
hönd félagsins s. 1. vetur. Skinfaxi þakk-
ar Eiðamönnum þessa góðu sendingu og
við birtum hér nokkrar myndanna af hin-
um fræknu íþróttaflokkum skólans.
Lið Umf. Eiðaskóla í knattspymu lék
tvo löglega leiki á vetrinum sem er ó-
venjulítið. Þessir leikir voru báðir gegn 3.
deildar liðum og vann Eiðaliðið þá báða;
þann fyrri með 3:1 gegn Hetti á Egils-
stöðum og þann síðari 5:0 en sá leikur
var við Hugin á Seyðisfirði.
Blaklið Umf. Eiðaskóla keppti fyrir
hönd UIA á Islandsmótinu á Akureyri.
Þar keppti það við lið UMSE og lið
Menntaskólans á Akureyri og tapaði báð-
um leikjunum. Blak er alveg ný íþrótt
austanlands, en ferðin á íslandsmótið á
Akureyri ætti að geta orðið byrjun á frek-
Þetta er unglingalið
Umf. Eiðaskóla í
körfuknattleik. Uessir
piltar urðu Austur-
landsmeistarar á sl.
vetri og töpuðu aldrei
leik.
20
SKINFAXI