Skinfaxi - 01.02.1974, Blaðsíða 10
Laurits
Pedersen
frá Danmörku
ekið að Reykholti þar sem Vilhjálmur
Einarsson skólastjóri rabbaði við gestina
um staðinn og sögu hans. Því næst voru
Barnafossar og Hraunfossar skoðaðir og
síðan ekið til Þorsteins bónda á Brúar-
reykjum og rætt við hann um búskap og
byggingar. Varmaland var næsti áfanga-
staður en þar voru okkur sýnd gróðurhús
og svepparækt Bjarna Helgasonar og síð-
an áð í Húsmæðraskólanum þar sem
hópsins beið glæsilegt kaffiborð.
Að kaffidrykkju lokinni var litast um
í hinum aðlaðandi húsakynnum skólans
og að lokum var hópnum boðið til setu-
stofu þar sem skólastjórinn Steinunn
Ingimundardóttir svaraði fyrirspurnum
varðandi skólann og þá menntun sem
hann og aðrir hliðstæðir skólar veita. Þar
hlýddum við einnig á erindi sem Kristján
Benediktsson garðyrkjubóndi flutti, um
gróðurhús og garðyrkju á íslandi, en síð-
an svaraði hann og Bjarni Helgason fyr-
irspurnum ráðstefnugesta um þau mál.
Mánudagurinn endaði svo með stór-
glæsilegum kvöldverði í boði Kaupfélags
Borgfirðinga í Hótel Borgames. Þar voru
mættir ýmsir starfsmenn og forystumenn
K.B. og skýrðu þeir frá hinum ýmsu
þáttum í starfi kaupfélagsins eftir að
kaupfélagsstjórinn Ólafur Sverrisson
hafði flutt stutt yfirlitserindi um K.B. Er
skemmst frá því að segja að allar viðtök-
ur í Borgarfirði, bæði skólanna, bænd-
anna og kaupfélagsins, voru með ein-
stökum myndarbrag, enda rómuðu gestir
okkar mjög þær móttökur sem hópurinn
mætti hvarvetna í héraðinu.
Þá voru hinir eiginlegu ráðstefnudagar
liðnir, en þriðjudagurinn var enn til ráð-
stöfunar og var hann notaður til að litast
ofurlítið um á Suðurlandi. Fyrst var stað-
næmst við Mjólkurbú Flóamanna, þar
sem Hafsteinn Þorvaldsson kom til móts
við hópinn og slóst í förina. Grétar Sím-
onarson mjólkurbússtjóri hefur jafnan
sýnt okkur sérstaka velvild þegar við
höfum verið á ferð um Suðurland með
erlenda gesti og svo var einnig í þetta
sinn. Leiðsögumaður í gegnum mjólkur
búið sjálft var Gunnar Finnlaugsson,
Ture 0steris
frá Noregi
10
SKINFAXI