Skinfaxi - 01.06.1975, Page 14
Hvernig fer sundkeppnin?
Rabbað við Þórð Gunnarsson sundþjálfara
Þórður Gunnarsson er sundþjálfari
Umf. Selfoss og hefur ásamt Ester Hjart-
ardóttur í Hveragerði undirbúið sund-
fólk HSK fyrir landsmótið. Við spvrjum
Þórð strax hvort Skarphéðinn sendi stór-
an hóp í sundkeppnina.
— Já við verðum með fulla þátttöku
í öllum greinum.
-— Og er þetta sterkt lið?
— I heild er þetta mjög gott lið. Það
er skipað mjög ungu og efnilegu sund-
fólki að verulegu leyti. Við væntum
mikils af þeim bæði á landsmótinu og í
framtíðinni.
— Hvaða sambönd heldurðu að muni
helst berjast til úrslita í sundkeppninni?
— Eftir sundárangri undanfarið sýnist
mér að það verði HSK, Umf. Skipaskigi,
UMSK og UMFN. Ég held að breiddin
og styrkurinn sé mestur hjá þessum aðil-
um, en fleiri kunna líka að senda góða
einstaklinga eins og t. d. UMSK og
UMSB.
— Og hverjir fá flest stig í sund-
keppninni?
— Ég spái því að Skarphéðinn vinni
stigakeppnina. Styrkur okkar felst ekki
síst í góðri getu í öllum greinum, miklum
áhuga og mikilli breidd sem getur fært
okkur stig í öllum greinum. Ég býst
annars við því að keppnin verði mjög
jöfn og skemmtileg.
— Hvaða einstaklinga telurðu líkleg-
asta til að vinna bestu afrekin.
— I karlagreinunum verður það efa-
laust Guðjón Guðmundsson frá Akranesi.
Ég hef heyrt að hann liafi æft vel undan-
farið og ætli að keppa á landsmótinu.
Mér þykir líklegast að hann vinni bæði
besta afrekið og verði stigahæstur.
I kvennagreinum hefði ég spáð Elín-
borgu Gunnarsdóttur HSK samsvarandi
sigrum í kvennasundinu þar til fyrir fá-
um vikum að upp rann ný stjarna. Það
er Sonja Heiðarsdóttir UMFN. Hún er
aðeins 12 ára gömul og tekur svo stór-
stígum framförum um þessar mundir að
undrum sætir. Eins og sakir standa spái
ég því að hún vinni besta afrekið og fái
einnig flest stig.
Guðjón
Guömundsson,
USK. Verður
hann með á ný?
14
SKINFAXI