Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1975, Page 20

Skinfaxi - 01.06.1975, Page 20
íþróttafólk úr ungmennafélögunum fer í Utanferð eftir landsmót Á síðasta sambandsþingi UMFÍ var á- kveðið að efna til utanferðar að loknu 15. landsmóti UMFÍ. Hugmvndin er raunar miklu eldri og má segja að þessi ferð hafi legið í loftinu allt frá því að heim var komið úr velheppnaðri Dan- merkurferð að loknu 14. landsmótinu. Að undirbúningi þessarar ferðar hefur nú verið unnið síðustu mánuðina í sam- ráði við gestgjafa okkar, sem er Árhus Amts Gymnastikforening, en hópur frjálsíþróttafólks frá AAG dvaldi hér á landi um tíma síðastliðið sumar í boði UMFI, eins og Skinfaxi hefur áður skýrt frá. Ákveðið hefur verið að tveir fvrstu í hverri grein frjálsra íþrótta á 15. lands- mótinu veljist til fararinnar og að keppt verði í sömu greinum í Árósum og á landsmótinu. Geti 1. og 2. maður ein- hverra hluta vegna ekki farið, kemur að 3ja og fjórða manni að hlaupa í skarðið, eins og raunar gerðist síðast. Áætlað er að farið verði að heiman 19. júlí og kom- ið aftur 29. júlí. Þama er skammur tími til stefnu frá sjálfu mótinu og því áríð- andi að væntanlegir þátttakendur geti svarað því strax að móti loknu, hvort að þeir geta farið eða ekki svo að hægt sé að ná í varamennina strax. Ferðir þessar hafa verið fjármagnaðar á þann hátt að kostnaði hefur verið skipt jafnt á fjóra aðila, þ. e. þátttakanda, fé- lag hans, samband hans og UMFÍ. Þessu var vel tekið síðast og skoraðist þá eng- inn undan sínum hlut og vonum við fast- lega að svo verði einnig nú, enda virðist það eini möguleikinn. Allt verðlag hefur að sjálfsögðu margfaldast frá síðustu ferð en þá var hlutur hvers kr. 3.000,— fvrir Á mótum dönsku ung- mennafélaganna er lögð mikil áhersla á fimleika fólks á öllum aldri. Hér sýna norsk- ir öldungar leikfimi á móti dönsku ung- mennafélaganna. 20 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.