Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1975, Page 26

Skinfaxi - 01.06.1975, Page 26
Heimsmetin eiga skamma ævi Er ”METÚRSALEM„ úr sögunni? Aldarfjórðungsgamalt íslandsmet leið undir lok í sumar, og þar með féll elsta metið sem náð hafði óvenjulega háum aldri miðað við met í sundi og frjálsum íþróttum. Þetta var Islandsmetið í spjót- kasti eins og kunnugt er. Það var Jóel Sigurðsson sem kastaði spjótinu 66,99 metra árið 1949, og síðan hafa allar at- lögur íslenskra spjótkastara að meti hans mistekist þangað til í sumar að Óskar Jakobsson bætti það tvívegis, samtals um Jóel Sigurðsson fyrir 25 árum. íslandsmet hans í spjótkasti. Varð ísl. „Metúrsalem“. nær 7 metra eða í 73,72 m. íslensk met verða enn gjaman nokkuð gömul. Það er hins vegar orðið óvenjulegt nú á dögum að heimsmet í frjálsum íþrótt- um og sundi nái svona háum aldri, en ekki er langt síðan metin gátu orðið nokkuð gömul. Hinar öru framfarir í þjálfunartækni síðustu ára liafa hins vegar gjörbreytt þessu. Nú standa metin vart deginum lengur, og metin sem náðu 10—20 ára aldri heyra sögunni til. Þau met hafa stundum í gamni verið kölluð „metúrsalem" til heiðurs hinum aldna biblíuskörungi sem varð allra karla elstur. Eitt hið þekktasta þeirra er langstökks- met Jesse Owens — 8,13 m. — sem bann setti á olympíuleikunum í Berlín 1936. Það varð jafngamalt spjótkastmeti Jóels Sigurðssonar. 25 ár liðu uns nokkr- um tókst að stökkva lengra, en þá var líkt og stífla brysti, og fjöldi stökkvara hefur stokkið lengra síðan 1961. Þýski hlauparinn Rudolf Harbig setti heimsmet í 800 m. hlaupi í Milano 1939. Tíminn var 1.46,6 mín., og mörgum þótti 26 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.