Skinfaxi - 01.06.1975, Page 29
FRETTIR UR STARFINU
Umf. Starfholtstungna
Skinfaxa hefur borist Fréttablað Umf.
Stafholtstungna, sem gefið var út í vor.
Þetta er snyrtilega fjölritað blað með
kápu, og er þar greint skilmerkilega frá
starfi félagsins og starfsaðstöðu. Frásagn-
ir blaðsins vitna um hið fjölþætta starf
ungmennafélaganna í sveitum landsins,
s. s. iþróttastarf i mörgum greinum, mál-
fundastarfsemi, ferðalög, þjóðhátiðar-
samkomur, landgræðslu, sjálfboðavinnu
við félagsheimili og margt fleira. Það er
yfirleitt ekki haft hátt um hið marg-
þætta starf ungmennafélaganna, en þeg-
ar fréttir frá einu félagi sem þessu eru
lesnar, mætti öllum verða Ijóst hins fél-
agslega og menningarlega þýðing þessara
félaga. Stjórn Umf. Stafholtstungna
skipa Gunnlaugur Árnason, Varmalandi
(form.); Klemenz Halldórsson Dýrastöð-
um og Erla Kristjánsdóttir Stóru-Skóg-
um.
Heimsókn frá Reykholti
Dag einn i marsmánuði birtist á skrif-
stofu UMFÍ 13 manna hópur tápmikilla
ungmenna úr Leiðbeinendadeild Reyk-
hoitsskóla Borgarfirði, ásamt kennara
sinum og foringja Matthiasi Ásgeirssyni.
Formaður og Framkvæmdastjóri UMFÍ
tóku á móti þeim og röbbuðu við þau um
störf, stöðu og ma.kmið UMFÍ.
í lok heimsóknarinnar þáðu gestirnir
veitingar og gjafir UMFÍ.
Nemendurnir frá
Reykholti í aðalstöðv-
um UMFÍ ásamt Haf-
steini Þorvaldssyni
formanni UMFÍ og
kennara sínum
Matthíasi Ásgeirssyni.
SKINFAXI
29