Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1978, Page 3

Skinfaxi - 01.02.1978, Page 3
SKINFAXI Tímarit Ungmennafélags íslands — LXIX árgangur — 1. hefti 1978 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnar Krisfjánsson. — Út koma 6 hefti á ári. Eigin framleiosla er okkar hagur Við lýðveldistökuna 17. júni 1944 fögnuðu ungmennafélagar og aðrir landsmenn merk- um áfanga í áratuga sjálfstæðisbaráttu þjóðar- innar og hétu því að standa vörð um stjórnar- farslegt og efnahagslegt sjálfstæði hennar á hverju sem gengi. Þetta kom meðal annars fram í athyglis- verðum ávörpum fjölda framámanna í hreyf- ingunni á þessum tíma. Það er því tímabært nú að kanna varðstöðuna og eflaust ekki út f hött. Höfum við í tæknibyltingu og velmegun síðari ára sofið á verðinum og þannig svikið þessa grundvallarhugsjón hreyfingarinnar? Sjálfstæði smáþjóðar er ekki auðvelt að varðveita í kapphlaupi auðhyggjuþjóðfélags- ins. Því miður var ekki um neinn lokasigur að ræða 1944 og skugga erlendrar hersetu ber enn fyrir augu, auk þess sem undirstöður hins efnahagslega sjálfstæðis okkar veikjast stöð- ugt með óheyrilegum lántökum erlendis frá. Það keyrir þó um þverbak þegar vega á að einum undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar, land- búnaðinum, með þeim hætti að telja hann eins konar ómaga í þjóðarbúskapnum, og réttara væri að sækja þá matbjörg sem hann hefur framleitt til erlendra aðila. Slík aðför er svo margslungin og hættuleg að sannir liðsmenn ungmennafélagshreyfingarinnar geta ekki lát- ið hana sem vind um eyru þjóta. Ungmennafélagshreyfingin og hugsjónabar- átta hennar f 70 ár er ávöxtur bændaþjóðfé- lagsins og þeirrar menningarbyltingar sem sveitafólkið bar fram til sigurs um síðustu alda- mót. Ef grisja á meira en orðið er íslenska bændastétt og blómlegar byggðir þessa lands með aðför í fjölmiðlum og óréttlátri skiptingu þjóðarkökunnar þeim til handa, riðar ein af meginundirstöðum sjálfstæöis okkar til falls. Boðskapur UMFÍ þetta árið er því: „Stönd- um vörð um íslenskan landbúnað". „Eigin framleiðsla er okkar hagur“. í þessum orðum felst ekki eingöngu það, að íslensk matvæla- framleiðsla sé sú hollusta og besta sem völ er á, heldur og miklu fremur það, að stór hluti þjóðarinnar sem byggir og heldur uppi margþættu félags- og menningarlífi víða um land, vinnur að þessum atvinnuvegi. Bæði sem framleiðendur og einnig ! þjónustu- og úrvinnslugreinum svo þúsundum skiptir. Góðir ungmennafélagar. — Eflum varðstöð- una, sjálfstæðisbarátta smáþjóðar er ævarandi og í ótal þáttum. (slandi allt. Hafsteinn Þorvaldsson. SKINFAXI LANDS80KASAF4 3 5 2 0 -M ÍSLANOS 3

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.