Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1978, Page 26

Skinfaxi - 01.02.1978, Page 26
ef þa5 er notað af ábyrgum aðilum. í Roskilde Amt höfum við krafist þess í skólaíþróttum, að kennarar hafi tek- ið þátt í 24 klst. námskeiði í þjálfunar- tækni og öryggisatriðum áður en þeir fá lykilinn að þessu tæki, sem alltaf er umsetið. Hvað mini-trampólin snertir full- yrði ég að það er tæki sem er virkt í skólunum. Það gefur stórum og þung- um nemendum möguleika á að njóta sín. En það verður líka að sýna gætni við notkun þess. Það verður að undir- búa nemandann með góðri undirbún- ingsþjálfun, eins og reyndar þarf fyrir öll stökk á hvaða áhaldi sem er. Gleymi maður þeim grundvallarat- riðum getur verið hætta á meiðslum í hrygg — slík meiðsli hafa ekki orðið hér hjá okkur. í Danmörku hefur alls ekki verið til umræðu að hætta við notkun trampólíns, ef til vill kemur að því, en ég held þó ekki. En það er áríðandi að sækja námskeið fyrir þá sem kenna. Hér höldum við áfram að nota trampólín. Þetta var svar Paul Arne og leyfi ég mér að undirstrika það, sem hann segir — við þurfum að kynna okkur notkun slíkra tækja áður en við tök- um að okkur að kenna á þau. 4. Tvö sérsambönd hafa látið i ljósi áhuga á námskeiðshaldi fyrir leið- beinendur sína en það eru frjálsí- þrótta- og borðtennissambandið. Nán- ar verður auglýstur tími á námskeið þau, sem hér verða haldin síðar. Sigurður R. Guðmundsson. 0 GROHE =VATN+VELLÍÐAN Fjórda hvert blöndunartæki íEvrópu erfrá GROHE/ ÁRS ÁBYRGÐ AÐALUMBOÐ: Þýzk-islenzka SÍOUMÚLA 21 • SÍMI 8-26-77 26 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.