Skinfaxi - 01.08.1978, Qupperneq 12
Kepni í 400 m hlaupi karla er jöfn og
spennandi og þrátt fyrir heldur óhagstætt
veður fellur landsmótsmetið og er þar að
verki Eyfirðingurinn ungi Aðalsteinn Bern-
harðsson, en Jakob Sigurólason er ekki
langt undan. í 400 m hlaupi kvenna
hleypur Oddný Árnadóttir allar aðrar af sér
og sigrar á nýju landsmótsmeti. 1000 m
boðhlaupið þykir jafnan skemmtileg grein
og spennandi. Það fer þannig fram að fyrsti
maður hleypur 100 m, annar 200, þriðji
300 og endaspretturinn er 400 metrar. Þar
kemur enn einn óvænti sigurinn þegar
sveit HSÞ með Jakob Sigurólason í loka-
spretti sigrar hina spretthörðu Vestfirðinga.
í 1500 m hlaupi eru Austfirðingar aftur á
ferðinni, og nú er það Björn Skúlason sem
fyrstur er til að slíta marksnúruna. Jón Dið-
riksson er fjarri góðu gamni en boð bárust
frá honum daginn fyrir landsmótið að hann
væri meiddur og treysti sér ekki til keppn-
innar, en Jón hafði dvalið við æfingar í
Þýzkalandi, ásamt fleiri íslendingum.
Félagi hans úr UMSB, Ágúst Þorsteinsson,
nælir sér í silfrið.
Hafsteinn Jóhannesson UMSK sigrar í
110 m grindahlaupi i sterkum meðvindi og
árangur telst því ekki gildur sem met.
Bræðurnir úr Reykholti, Einar og Rúnar
Vilhjálmssynir, leggja sambandi sínu til 11
stig i spjótkasti. Lengsta kast Einars mælist
tveim metrum lengra en Rúnars. í lang-
stökki kvenna stendur yfir hálfgerð mara-
þonkeppni með 26 keppendum. Þar hafa
því nokkur stökkin verið stokkin og von-
andi enginn stokkið upp á nef sér áður en
úrslit fást. Og þar kemur hin keppnisharða
Bergþóra Benónýsdóttir HSÞ aftur til skjal-
anna og lengsta stökk hennar mælist 5.30
m. Stalla hennar úr HSÞ, Laufey Skúla-
dóttir, fylgir fast á hæla hennar. Tvöfaldur
sigur Þingeyinga.
Hvernig hefur landsmótsspáin úr 3. tbl.
nú staðist, þennan dag landsmótsins?
Nokkur óvænt forföll urðu er þeir Jón
Diðriksson og Stefán Hallgrímsson mættu
„Líf og fjör í sveitinni”. Dansflokkur frá Umf. Hruna-
manna.