Skinfaxi - 01.08.1978, Blaðsíða 14
og vinna með nokkrum yfirburðum, og
jafna landsmótsmetið frá 1975.
Að uppgjöri er komið í knattleikjunum,
og víðast um skemmtilega keppni að ræða.
í keppninni um 1. sætið í handknattleik
kvenna skilja lið HSÞ og UMSK jöfn að
lokinni framlengingu. Þegar lið eru svo jöfn
fær ekkert skorið úr um sigur nema hlut-
kestið og HSÞ stúlkurnar eru heppnari.
Úrslitakeppni knattspyrnunnar fer fram
á grasvellinum að lokinni hátíðadagskrá.
Þar berjast UMSK og HSH og eftir jafnan
leik tekst liðsmönnum UMSK að finna fót-
boltanum stað innan markasúlnanna. 1:0
er staðreynd og þrátt fyrir harða sennu
HSH liðs að marki andstæðinganna verður
engu um breytt. í blaki sigrar HSK UMSE
3:1 eftir mjög skemmtilegan leik. Baráttan
skipar veglegan sess en þrátt fyrir hana
bregður fyrir meistaraspili öðru hvoru.
Lið HSH skipað leikmönnum Snæfells
úr Stykkishólmi leggur ótrautt til atlögu við
mótherja sína, 1. deildarliðsmenn Njarð-
víkinga. Á leik liðanna veðrur ekki séð að
mikill ójöfnuður ríki, menn reyna að verj-
ast eftir föngum og skora þess á milli.
Leiknum lýkur með sigri Njarðvíkinga en
þá höfðu allmargir orðið að yfirgefa völlinn
úr báðum liðum sökum villufjölda.
Hátíðadagskráin
Að venju fór fram hátíðadagskrá síðasta
dag mótsins. Hófst hún á íþróttavellinum
kl. 14.30 með lúðrablæstri Lúðrasveitar
Selfoss undir stjórn Ásgeirs Sigurðssonar.
Að því loknu flutti formaður Landsmóts-
nefndar, Jóhannes Sigmundsson, ávarp,
síðan flutti séra Sigurður Sigurðsson
bænarorð og að því loknu sýndu 200 börn
af HSK-svæðinu fimleika undir stjórn
Huldu Gunnlaugsdóttur og Guðrúnar
Guðmundsdóttur. Var sýningin vel heppn-
uð og áhrifamikið að sjá þegar þörnin
mynduðu stafina UMFÍ og síðan 1978 á
vellinum.
Þá flutti heiðursgestur 16. landsmóts,
séra Eiríkur J. Eiríksson, fyrrverandi for-
maður UMFÍ, ávarp. Að þvi loknu kom
íþróttafélagið Gerpla úr Kópavogi með frá-
bæra fimleikasýningu sem að mestu var
samin og æfð með 16. landsmótið í huga,
vakti sýningin mikla hrifningu áhorfenda.
Að því loknu sýndu gestirnir Odense
Amt Gymnastikforening fimleika stúlkna
og pilta við góðar undirtektir.
Allmikill fjöldi gesta var á íþróttasvæð-
inu og varð ekki annað séð en þeir
skemmtu sér hið besta.
Mótinu lýkur
Dagurinn Iíður og nokkurt fararsnið á
fólki, þó er eftir fjölskylduskemmtun í
íþróttahúsinu og að henni lokinni er verð-
launaafhending og mótsslit.
Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunaaf-
hending og mótsslit fara fram innan dyra.
Þorsteinn Einarsson og Hafsteinn Þor-
valdsson annast verðlaunaafhendinguna og
keppendur koma hver af öðrum og taka við
verðlaunum sínum. Nokkur spenna liggur í
loftinu þegar kemur að heildarstigum enda
þótt menn hafi grunað í hvað stefndi með
sigur. Héraðssambandið Skarphéðinn er
hinn ótviræði sigurvegari og Kristján Jóns-
son formaður HSK gengur upp á sviðið til
þess að taka á móti sigurstyttunni.
Hafsteinn Þorvaldsson slítur mótinu og
getur þess í lokin að 17. landsmót UMFÍ
verði haldið í umsjón UMSE 1981. g.k.
14
SKINFAXI