Skinfaxi - 01.08.1978, Síða 13
ekki til leiks, en að öðru leyti er mesta furða
hvað hún hefur staðist.
Grindahlaupið var þeim spáendum
nokkur ráðgáta og ónákvæmnin því hvað
mest þar. Kringlukastið stenst, a.m.k. 1.
sætið, 400 m hlaupið sömuleiðis. Að öðru
leyti skal lesendum eftirlátinn frekari sam-
anburður.
Kvöldvaka
Það var sannkölluð kvöldvökustemmn-
ing ríkjandi í íþróttahúsinu og húsið stóra
reyndist nú heldur lítið fyrir allan þann
skara áhqrfenda sem þar var samankominn
og ungir sem aldnir virtust taka þátt í því
sem franri fór af lífi og sál. Og það er
skemmst frá því að segja að eitt atriðið á
dagskránni, fimleikasýning Gerplu úr
Kópavogi undir stjórn Margrétar Jónsdótt-
ur, sló alyeg í gegn. Það var margt sem fór
saman en frábær þjálfun og skemmtileg
tónlist átti stærstan þátt í því hvernig til
tókst.
síst þegar svo stór íþróttahús eru til staðar,
því óvíst má telja að hún hefði tekist jafn-
vel utan dyra.
Stigakeppnin
Að lokinni keppni þennan annan dag
landsmótsins standa heildarstigin þannig að
HSK er enn með forystu með 180 7/12 stig.
HSÞ hefur skotist upp í annað sætið og er
með 128 stig og UMSK er í þriðja sæti með
124 stig.
Sunnudagur 23. júlí
Ennþá skín sólin þótt ekki sé jafn glatt
og fyrr og strekkingsvindurinn lætur þess
einskis ófreistað að rifa upp mold og reyk
og þeyta í augu áhorfenda sem keppenda.
Fresta verður keppni í stangarstökki um
sinn vegna þess hve illa gengur að hemja
rána en boðhlaupi karla (4 x 100) verður
ekki frestað og sveitirnar geisast af stað. Og
nú njóta hinir spretthörðu Vestfirðingar sín
Kvöldvakan í heild sannaði að hún á rétt
á sér á sámkomum sem þessum og þá ekki
Þéttsetinn bekkurínn á kvöldvökunni. Hún þötti tak-
ast með afbrígðum vel.
.. j A'-’( ^ Vjs •* ?>> g llSft ’ * -l
f '1| SBj#i W j ' BÆ IPf’ BpSKi &1'. -fílf jr 'vjjjL. +>''* ÆsgSg
,j|. ' _ Æ M rW&~: *x *", \uT’- w 3 j| >