Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1978, Page 16

Skinfaxi - 01.08.1978, Page 16
vissulega stór, en hið félagslega átak sem á bak við liggur hjá liðlega þrjú þúsund íbú- um Selfoss, skluð þið ágætu mótsgestir íhuga hver með öðrum. Keppendur, starfsmenn og ágætu móts- gestir, innlendir og erlendi, — verið öll vel- komin til þessarar miklu þjóðhátíðar ís- lenzkra ungmennafélaga sem hér er að hefj- ast. Hér eru mættir til leiks um 1100 íþrótta- menn í keppnisgreinum og sýningarflokk- um frá 20 héraðssamböndum og félögum með beina aðild að UMFÍ og svo 45 manna sýningarflokkur frá Danmörku. Uppskeruhátíð skal það vera, að þessu sinni er sviðið eða leikvangurinn Sel- foss, yngsti kaupstaður landsins, uppskeran allri auðlegð meiri, æskufólk úr öllum hér- uðum landsins. Forystumenn ungmennafélagshreyfing- arinnar, leiðbeinendur og félagsleiðtogar vona að hún beri fagurt vitni þeirri hugsjón sem hreyfingin hefur barizt fyrir sl. 70 ár. Við vonum einnig að það félagslega átak sem að baki liggur við framkvæmd og þátt- töku i þessu móti efli samtök okkar innan frá um leið og við þökkum sívaxandi skiln- ing og stuðning opinþerra aðila við starf- semi ungmennafélaganna. 16. landsmót UMFÍ er sett. íslandi allt. Timataka getur verið kalsamt starf. íþróttabúöir HVÍ 1978 Fyrr á þessu sumri starfrækti HVÍ íþróttabúðir að Núpsskóla en þetta er í annað sinn sem slíkar búðir eru starfræktar af þess hálfu. Alls tóku 100 börn þátt í starfi búðanna en þær voru tvískiptar þannig að 19.—29. júní dvöldu þar 62 þörn á aldrinum 8—10 ára en 29. júní—8. júlí 38 börn á aldrinum 11 —13 ára. Á íþróttabúðunum voru æfð ýmis konar stökk, hlaup, köst, fimleikar, knattleikir, sund og borðtennis. Farið var í göngu- ferðir, hlaupið víðavangshlaup og haldnar kvöldvökur sem börnin undirbjuggu sjálf. Starfrækt var bókasafn og tómstundastofa með ýmiskonar spilum og töflum. Kennarar og stjórnendur iþróttabúð- anna voru þau Georg V. Janusson, Anna Bjarnadóttir, Hilmar Pálsson og Ólöf G. Valdimarsdóttir. 16 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.