Skinfaxi - 01.08.1978, Qupperneq 17
Fréttabréf
frá Tálknafiröi
Hér á Tálknafirði var stofnað ung-
mennafélag þann 1. júlí sl. Tilgangurinn
með stofnun félagsins var að reyna að
hressa upp á iþrótta- og félagslífið, því það
hefur verið heldur dauft í seinni tíð. Hér
voru aðstæður til íþróttaiðkana frekar
slæmar, aðeins lélegur malarvöllur. En eftir
að félagið var stofnað rættist heldur úr því,
við fengum til afnota túnskika sem hrepp-
urinn á, og var þar búinn til iþróttavöllur
með öllu tilheyrandi. Hvort hér væru ein-
hverjir afreksmenn á íþróttasviðinu vissum
við lítið svo ráðist var í það að halda mót til
þess að skera úr um það. Mótið var haldið
16. júli sl. Þátttaka var góð eða 41 kepp-
andi. Þarna fuku hvorki íslandsmet né
heimsmet en ef miðað er við að enginn
hafði æft fyrir þetta mót var árangur nokk-
uð góður. Einnig héldum við sundmót 30.
júlí og tóku þátt í því 15 keppendur. Var
þar rösklega synt.
Nú standa yfir æfingar í frjálsum íþrótt-
um og æfa unglingarnir fyrir Vestfjarða-
mót unglinga sem haldið verður seinnipart-
inn í ágúst. Einnig standa yfir æfingar í
knattspyrnu 14 ára og yngri þar sem æft er
fyrir árlegt mót sem fram fer á milli Pat-
reksfirðinga, Barðstrendinga, Tálknfirðinga
og Bílddælinga en það fer senn að hefjast.
Þetta er svona smásýnishorn af lífinu hér
og sést af því að það er ekki alger dauði yfir
þessu nýja félagi.
Sendum fréttir seinna.
Sendum bestu framtíðaróskir til Ung-
mennafélags íslands.
Heiðar Jóhannesson
Fréttir frá U.S.V.H.
Ungmennasamband V-Hún. hélt ársþing
sitt í byrjun maí. Þingið var haldið í Staðar-
skála og sá ungmennafélagið Dagsbrún um
þingið. Þingið sátu fulltrúar frá aðildar-
félögum innan sambandsins. U.S.V.H. er
lítið samband og eru ekki nema fjögur ung-
mennafélög innan sambandsins.
í skýrslu stjórnar kom fram að allnokk-
urt íþróttastarf var í gangi á liðnu sumri, þá
stóð sambandið fyrir spurningakeppni milli
stjórna ungmennafélaganna veturinn
1976—1977 en engin starfsemi var í gangi
á liðnum vetri.
Helstu mál þingsins voru hvernig helst
mætti auka starfsemi sambandsins og efla
það. Fram kom á þinginu að starfsemi ung-
mennafélaganna er með miklum blóma og
ættu því að vera góðar horfur á að starf-
semi sambandsins verði góð.
Formaður sambandsins, Grétar Árna-
son, gaf ekki kost á sér áfram. Núverandi
stjórn skipa:
Formaður: Gunnar Sæmundsson,
Hrútatungu.
Varaformaður: Sigfús Jónsson, Laugar-
bakka.
Gjaldkeri: Þorsteinn Sigurjónsson, Reykj-
um.
Ritari: Björn Sigurvaldason, Litlu-
Ásgeirsá.
Meðstjórnandi: Sigurður Björnsson,
Hvammstanga.
Með bestu félagskveðjum frá U.S.V.H.
Gunnar Sæmundsson
SKINFAXI
17