Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1978, Page 45

Skinfaxi - 01.08.1978, Page 45
og Búnarfélag Glæsibæjarhrepps í Hlíðar- bæ, i kvöldvökuformi, og var mjög fjölsótt. Var það mál manna, að hátíð þessi hefði verið einkar ánægjuleg og áhugi fyrir því að halda áfram á sömu braut. Utihátíð var haldin á Melgerðismelum í ágúst, tókst hún vel í blíðskaparveðri en þar komu fram meðal annarra þau Jón L. Árnason og Guðlaug Þorsteinsdóttir skák- menn og tefldu með lifandi skákmönnum. Þá gat framkvæmdastjóri þess að á síðasta ári hefði verið gerð tilraun til aukinnar kynningar á ársriti UMSE með þvi að gefa ársritið inn á hvert heimili í héraðinu og til allra félagsmanna innan UMSE er búsettir eru á Akureyri og Dalvík. Tóku félagsmenn ritinu vel og hefur þetta án efa kynnt málefni Ung- mennasambandsins vel. Að síðustu þakkaði framkvæmdarstjóri, fyrir hönd forráðamanna UMSE, öllum þeim er lagt höfðu sambandinu lið á árinu. Jóhannes Sigurgeirsson gjaldkeri UMSE, gerði grein fyrir reikningum sambandsins. Þar kom fram að erfiðleikar hafa verið í rekstri sambandsins og ber t.d. að nefna hve kostnaður við ferðalög á mót og fl. hef- ur margfaldast á síðasta ári. Ýmiss annar kostnaður í rekstri hefur einnig vegið mikið. Öll sveitarfélög á sambandssvæðinu styrktu UMSE með fjárframlögum á síðasta ári. Þingið markaði og afgreiddi starfsáætlun fyrir yfirstandandi ár. Samkvæmt henni mun starfið verða með líkum hætti og und- anfarin ár. En sérstök áhersla var lögð á öflugt unglingastarf og útvegun leiðben- enda í íþróttum en mikill skortur virðist vera á þeim. Ákveðið var að standa sem best að þátt- töku á landsmóti UMFÍ er haldið verður á Selfossi í júlí í sumar og vinna síðan mark- visst að veglegu landsmóti á Dalvík en þar verður landsmót haldið 1981 í umsjá UMSE. Á þinginu kom fram mikil óánægja með vegamál í héraðinu og skorað á forráða- menn vegagerðarinnar að sjá um að gert verði verulegt átak til viðhalds og endur- nýjun vega og brúa í héraðinu. Þingið lýsti yfir stuðningi sínum við hin nýstofnuðu samstök S.Á.A. og hvetur að áfram verði unnið að bindindismálum á vegum UMSE og félaga þess. Þá skoraði þingið á sam- bandsfélögin að vinna sem best að gróður- vernd og landgræðslu. Ákveðið var að standa fyrir tveggja daga útihátíð að Melgerðismelum um mánaða- mótin júní-Júlí með þekktum skemm- tikröftum. SKINFAXI 45

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.