Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1978, Side 46

Skinfaxi - 01.08.1978, Side 46
Gestir þingsins voru Hermann Guðmundsson framvkæmdarstjóri ÍSL Alfreð Þorsteinsson, stjórnarmaður ÍSÍ, Guðmundur Benediktsson fyrrverandi stjórnarmaður UMSE og Þórunn Magnús- dóttir skólastjóri Svalgarðsstrandarskóla. í Svalbarðsstrandarskóla naut UMSE ágætrar aðstöðu og Ungmennaf. Æskan veitti góða aðstoð við þinghaldið. í þinglok bauð Ungmennaf. Æskan til ágætrar veislu. Kaupfélag Svalbarðastrandar gaf UMSE allt fæði er þingfulltrúar neyttu yfir þing- dagana og var það höfðingleg gjöf. í sambandi við þingið efndi UMSE til kvöldvöku þar sem fram fóru ýmiss konar skemmtiatriði, meðal annars léku félagar úr Æskunni einþáttung og barna- skólanemendur voru með tískusýningu. Á kvöldvökunni var kunngjört að Aðalsteinn Bernharðsson úr Umf. Framtíð hefði verið kjörinn íþróttamaður UMSE 1977, og við þetta tækifæri var afhentur eignargripur til hans frá UMSE, en Aðalsteinn gat ekki tekið við gripnum sjálfur, þar sem hann var að keppa með landsliðinu í blaki, í Færeyj- um, en formaður Framtíðar tók við gripn- um fyrir hans hönd. Aðalsteinn hefur verið í fremstu röð íþróttamanna UMSE og landsins nú síðustu ár og er vel að þessum heiðri kominn. Á kvöldvökunni var Umf. Reyni af- hentur Sjóvábikarinn, sen félagið hlaut flest stig úr mótum UMSE á sl. ári. Var þetta í þriðja sinn í röð sem félagið hlýtur bikarinn og vann hann því til eignar. Þá var Umf. Árroðinn afhentur félagsmála- bikarinn fyrir gott félagsstarf á liðnu ári. Góð gjöf. Á kvöldvökunni afhenti Guðmundur Benediktsson, Svalgarðseyri gjöf til UMSE sem var fundarhamar smíðaður af bróður hans, Sigmari Benediktssyni. Er fundarhamar þessi mikill kjörgripur og eiga þeir bræður þakkir skyldar fyrir hlýhug til Ungmannasambands Eyja- fjarðar. Haukur Steindórsson, Þríhyrningi, sem hefur verið í stjórn UMSE síðastliðinn 16 ár, fyrst sem ritari og nú síðustu 5-ár sem formaður Ungmennasambands Eyjafjarðar baðst undan endurkosningu. Var Hauki þakkað fyrir mikil og góð störf á liðnum árum í þágu Ungmennasam- bandsins og honum og fjölskyldu hans óskað allra heilla. Formaður var kosinn Jóhannes Geir Sigurgeirsson á Önguls- stöðum, varaformaður Vilhjálmur Björns- son Dalvík, gjaldkerfi Birgir Jónasson Hrafnagilsskóla, ritari. Magnús Kristinsson, Akureyri og meðstjórnandi Þórir Snorrason Akureyri. í varastjórn: Árni Arnsteinsson, Felix Jósafatsson og Halldór Sigurgeirsson. Framkvæmdarstjóri Ungmennasam- bands Eyjafjarðar er Halldór Sigurðsson kennari við Þelamerkurskóla. í Ungmennasambandi Eyjafjarðar eru 15 félög með 1115 félaga innan sinna vébanda. Fréttatilkynning frá UMSE. 46 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.