Skinfaxi - 01.06.1979, Síða 14
Þingforsetar Stefán Hafsteinsson standandi Eggert
J. Levy sitjandi.
Vel fer á því að afhjúpa slík skilti með at-
höfn föstudaginn 22. júní í sumar, en kl.
11.55 þann dag munu Austur-Húnvetn-
ingar taka við af Skagfírðingum í Lands-
hlaupi FRÍ og kl. 16.50 þann dag ljúka
Austur-Húnvetningar þátttöku sinni í
hlaupinu við Gljúfurá og Vestur-Hún-
vetningar taka við.
Þingið sendi öllum þeim, sem styrkt
hafa starf sambandsins beztu þakkir. Sér-
stakar þakkir voru sendar sveitastjórnum
í héraðinu fyrir veittan stuðning. Á
síðasta ári styrktu allar sveitastjórnir í A-
Hún. að einni undanskilinni starf sam-
bandsins, flestar með upphæð, sem svarar
til kl. 300.00 pr. íbúa í viðkomandi sveit-
arfélagi.
Á þinginu var lýst kjöri íþróttamanns
ársins, en það var Ingibergur Guðmunds-
son Fram, sem var kjörinn íþróttamaður
ársins.
Karl Lúðvíksson og Páll Kristinsson
gengu úr stjórn USAH á þinginu, en i
þeirra stað voru kjörnir Jón Torfason
Torfalæk og Þorsteinn Sigurðsson
Blönduósi.
Magnús Ólafsson formaður.
lnglbergar Guðmundsson iþróttamaður USAH1978 i ræðustól,
14
SKINFAXI