Skinfaxi - 01.06.1979, Page 21
AÐALFUNDUR
UMFK
Aðalfundur UMFK var haldinn laugar-
daginn 24. febr. sl. Fyrir fundinum lá
fjölrituð skýrsla og reikningar yfir starf-
semina sl. starfsár.
Á fundinum gerði afmælisnefnd grein
fyrir störfum sínum en fyrirhugað er að
minnast 50 ára afmælis félagsins sem er í
sept. n.k. með með ýmsu móti m.a.
íþróttamótum, sýningum, útgáfu af-
mælisrita og keppnum í sem flestum
íþróttagreinum.
Á sl. starfsári voru stofnaðar tvær nýj-
ar deildir innan félagsins þ.e. knatt-
spyrnudeild og handknattleiksdeild en
fyrir voru júdó og borðtennisdeildir.
Stjóm félagsins var endurkjörin en
hana skipa: Hafsteinn Guðmundsson for-
maður, Steinar Sigtryggsson varaformað-
ur, Hörður Ragnarsson gjaldkeri, Sigur-
björn Gunnarsson ritari og Haukur Haf-
steinsson meðstj. Þá eiga sæti í stjórninni
fulltrúar deilda: Ómar Sigurðsson (júdó),
Karl K. Hólm (borðtennis), Guðjón Þór-
hallsson (knattspyma), Guðni Grétarsson
(handknattleikur).
í UMFK eru nú 970 félagsmenn og eru
stundaðar 6 íþróttagreinar innan þess.
Æfingar fara að miklu leyti fram í húsi fé-
lagsins sem breytt var í íþróttahús sumar-
ið 1976. Eru milli 50 og 60 æfingatímar
þar hjá félaginu í viku hverri.
Framkvæmdastjóri UMFK er Haukur
Hafsteinsson.
Eyrarsparisjóður á Patreksfirði styrkir íþrótta- og
æskulýðsmál í byggðalaginu.
Þann 7. apríl sl. hélt Eyrarsparisjóður aðalfund §inn en slíkt teld-
ist ekki fréttnæmt í Skinfaxa nema fyrir þær sakir að sparisjóður
þessi sem er allvel stæður, ákvað á þessum aðalfundi sínum, að
verja einni milljón króna til íþrótta og æskulýðsstarfa í byggðarlag-
inu.
SKINFAXI
21