Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1981, Side 3

Skinfaxi - 01.06.1981, Side 3
SKINFAXI 3. tbl. - 72. órg. - 1981 ÚTGEFANDI: Ungmennafélag íslands. RITSTJÓRI: Steinþór Pálsson. RITNEFND: Pálmi Gíslason ábm. Diðrik Haraldsson. Sigurður Geirdal. Finnur Ingólfsson. AFGREIÐSLA SKINFAXA: Skrifstofa UMFÍ, Mjölnisholti 14, Reykjavík — Sími 14317. SETNING OG UMBROT: Eeturval sf. OFFSETPRENTUN: Prentval sf. ■K* Meðal efnis: Fréttir af þingum ............... 4 Viðtal við Þóroddjóhannsson.... 8 Frá Landsmótsnefnd.............. 10 Landsmótsspá í frjálsíþróttum . 12 Við skulum vinna næsta mót..... 18 Göngudagur fjölskyldunnar...... 18 Erlend samskipti .............. 19 Viðtal við Öskar Agústsson ..... 20 SkólamótUMSE .................. 22 Gjaldkeranámskeið hjá HSK ..... 24 Framkvæmdarstjórnarfundur...... 24 Vísnaþátturinn.................. 25 Margrét Bjamadóttir tekin tali . 26 Umf. Ásahrepps 70 ára ......... 28 Af útgáfustarfi................. 28 Nýtt starfslið................. 29 Skólamót USÚ og USVS........... 30 Forsíðnmjmdm 17. Landsmól UMFl er Jramundan og er blaðið að slórum hluta helgaðþví. Forsíðu- myndin er aj Gunnari Snorrasyni UMSK, hann hejurkeþpl á mörgum Landsmótum og kemur til með að keppa einnig nú. ian Fjölskyídc oq utngynennafélagið Fjölskyldupólitík er vinsælt umræðuefni á íslandi um þessar mundir, oft í beinu framhaldi af umræðum um jafnrétti karla og kvenna. í þessum umræðum er vandlega sneitt hjá að ræða tengsl fjölskyldunnar við það félagsstarf, sem gæti þroskað jafnt unga sem aldna — unginennafélagsstarfið —. Hver þekkir ekki fullyrðinguna: ,,Ég er að stofna heimili, ég þarf að byggja, ég er nýráðinn í ábyrgðarmikið starf, ég má ómögulega vera að því að starfa fyrir ungmennafélagið, það verða þeir yngri að gera”. (Einmitt þetta viðhorf er búið að hálfdrepa mörg vel starfandi ungmennafélög oftar en einu sinni). Hvað er það fólk að gera sem kveður félagið sitt þannig á besta aldri? Er heill og hamingja hins nýstofnaða heimilis bctur tryggt án samskipta við ungmennahreyfinguna og án allrar þátttöku í íþróttum? Nei, liér erum við á villigötum ungu menn og konur. Það er fullljóst að á hinum erfiðu tímum heimilisstofnunar er oft mjög lítill tími afgangs fyrir líkamsrækt og hollt félagsstarf. En sú stund rennur upp að menn yfirstíga þennan erfiða hjalla, börnin komast á legg, og þau leita sér félagsskapar út fyrir fjölskylduna. Þykir þá sumum vænt um að til skuli félagsskapur, sem gefur þessu unga fólki tækifæri til andlegs og líkamlegs þorska. Hitt verður að athuga að þessi félagsskapur þrífst aldrei nema fólk á öllum aldri standi að honum og sé reiðubúið til að fórna hluta af tómstundum sínum í þágu hans. Það eru dapurlega margir sem hafa yfirgcfið ungmcnnafélags- skapinn við stofnun heimilis án þcss að gera sér grein fyrir því að þeir eru að rífa einn hornsteininn undan velferð hins nýstofnaða heimilis, að þeir eru að skerða möguleika sinna aíkomenda til að eignast góða félaga í heilsusamlegu umhverfi. Nú hefur það gerst í æ ríkara mæli að foreldrar gerist á ný virkir aðilar að íþróttastaríinu eftir að börnin eru farin að stunda íþrótt- ir af kappi. Þetta er ánægjuleg þróun, og ef þetta er ekki að brúa kynslóðabilið, þá er það ekki hægt. Líkamsrækt er að sjálfsögðu öllum holl, sama á hvaða aldri menn eru og hvaða stöðu sem menn gegna, og hali menn fundið einhverja íþrótt við sitt hæfi, hafa þeir um leið komist í hollan félagsskap. Megi starf ungmennafélaganna tengja saman kynslóðir um alla framtíð. ísland allt. DS SKINFAXI 3

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.