Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1981, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.06.1981, Blaðsíða 21
Gómul mynd af Laugum, frá Landsmótinu 1961. afskekkt og kynntist ég því ekki félgsstarli í heimabyggð. Eggekk í ungmennafélagið hér strax en hef þó lítið starfað innan þess, mín störf beindust meira að skólanum og áður fyrr var miku meira fé- lagslíf hér. Nemendur voru hér langtímum saman, komust ekki heim og þurfti því að hafa hönd í bagga, vera með fólkinu um helg- ar og jafnvel í jólafríum ef sam- göngur hömluðu heimferð þess, stytta því stundir, skapa aðstöðu og aðstoða. Laugaskóli var áður miklu meiri íþróttaiðkunarskóli, íþróttakennslan ekki bundin af námsskrá og því sund og leikfimi meira stundað og meiri árangur með stöðugri ástundun fárra greina og meiri áhuga nemenda. Nú er kvöð að stunda margvísleg- ar geinar, hver grein fær stuttan tíma og því ekki mikil ástundun né lærdómur. Nemendur voru einnig eldri er þeir komu í skólann áður fyrr. Sem íþróttakennari stóð ég fyrir íþróttanámskeiðum fyrir HSÞ og sundnámskeiðum fyrir báðar Þingeyjarsýslur svo og sóttu Hríseyingar þessi námskeið. Það var því ef til vill eðlilegt að ég ynni að félagsstörfum HSÞ og var í stjórn alllengi og kosinn for- maður 1957. Frá þessum árum eru margar kærar minningar t.d. frá sam- norrænu sundkeppninni, en þar voru Þingeyingar ætíð í fremstu röð. Stundum þurfti að bjarga liálf— ósyndum þátttakendum og einn Mývetningur skildi ekkcrt í því er hann gafst upp eftir 1 og 1/2 ferð, hann var búinn að æfa sig vel heima í polli. Þá var skíðalands- gangan einnig skemmtileg og þar stóðu Þingeyingar sig einnig vel. Skemmtilegasti verðlaunagripur- inn í safni HSÞ er frá þeirri keppni. Nú, formaður varð ég 1957 og framundan urðn mörg góð ár. Starfið gekk þó í bylgjum, en félagsskapurinn var góður og Þingeyingar sýndu mikinn áhuga og mér góð\ ild. Sumir héldu að þeir væru að keppa fyrir mig, já, ég vann eitt stig fyrir þig Óskar. Slíkt hugarfar og áhugi er dýr- mætt í minningunni og bestu launin ef maður er til einhvers gagns. Landsmótið 1961 var fyrsta mótið sem héraðssamband stóð eitt að og bar fjárhagslega ábyrgð á. Ég var á landsmótinu 1940 og landsmot var haldið að Laugum 1946. Þingeyingar voru samhent- ir um að láta þetta landsmót, 1961, takast vel, og við mótið unnumeiraen lOOmanns. Lærðir og leiknir tóku höndum saman og við fengum sæmilegt veður. Ég er ekki sérlega harður stjórnandi, áhugi annarra hefur drilið mig áfram. Ég skef ekki utan af hlut- unum og get sagt mönnum til syndanna cn verð ekki var við að menn erfi það. Formennsku hætli ég síðan 1976 en hef unnið við ýmis skemmtileg störf á vegum sant- bandsins m.a. verið í nefnd vegna erlendra samskipta svo og vegna Laugahátíðar. Eg hef tvisvar verið í framkv'æmdastjórn íþróttahátíðar og mætt á fundum hennar. Ef þú átt að mæta á fundi skalt þú mæta þar þó þú hafir lítið til málanna að leggja, allir hafa hlutverk og jafnvel þögnin getur verið til góðs. U ngmennafélagshrey fmgin hefir gert mikið fyrir þessa þjóð. Hún hefur þrýst henni saman þegar með þurfti, reynt að bægja frá ýmsu því sem ekki er æskilegt og reynt að skapa æskunni meiri verkefni og holl. Líkaminn vex oft örar en sálin og oft þarf að varða veginn og hjálpa æskunni að ganga beinu brautina. I lokin \ il ég óska HSÞ þess að vera ljósberi æskunnar framvegis eins og fyrr og að UMFI beri gælu til að varða veginn í lramtíðinni með starfsemi sinni, landsmótum og öðrum góðum verkum. Þá tel ég æsku landsins vel borgið er lnigsjón þess lær hljómgrunn.” Svo mælti Oskar á Laugum að lokum og hann talar af nokkurri reynslu eftir 40 ára kennarastarf og margvísleg félagsstörf. Þrot- laust starf á þeim stað sem honum er kærastur, Laugum í Reykjadal. Arnaldur Bjarnason. SKINFAXI 21

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.