Skinfaxi - 01.06.1981, Blaðsíða 10
Frá
Landsmótsnefnd
Skrifstofa landsmótsnefndar
Eins og áður hefur komið fram
er skrifstofan að Hjalteyrargötu
10, Akureyri, með síma 96-23707.
Hún er opin frá kl. 13 til 19 alla
virka daga. Væntum við þess, að
ekki verði sparað að hafa sam-
band við skrifstofuna varðandi
landsmótið.
Mötuneyti
Samið hefur verið við Mennta-
skólann á Akureyri um sameigin-
legt mötuneyti í húsakynnum
hans fyrir keppendur og starfs-
fólk. Verð er ekki endanlega
ákveðið, en mun verða á bilinu
210 til 250 krónur mótsdagana,
þ.e. 3 máltíðir á dag í þrjá daga.
Þarf að panta með nokkrum fyrir-
vara.
Aðstaða í skólastofum
Landsmótsnefnd býður þátt-
tökuaðilum upp á aðstöðu í skóla-
stofum Gagnfræðaskóla Akureyr-
ar, sem cr rétt við tjaldstæði kepp-
enda. Þessa aðstöðu þarfað panta
með nokkrum fyrirvara.
Skák
Undankeppni í skák er lokið,
Sveitir frá UMSE, Umf. Bolung-
arvíkur, UMSK, HSK, UÍA og
USAH hafa tryggt sér keppnisrétt
á landsmótinu.
Handknattleikur
Það voru 8 aðilar er tilkynntu
þátttöku en samkvæmt lands-
mótsreglugerð skal skipt í tvo
riðla í knattíþróttum. Riðlaskipt-
ingin er þannig:
A-nðill: HSP, UMFKog UMFN
B-riðill: UMSE, UMSK,HSKog
UÍA
Blak
Það voru sjö lið er tilkynntu
þátttöku:
10
SKINFAXI