Skinfaxi - 01.06.1981, Qupperneq 12
Ingimundur blaðar í gömlum spám.
Intjiynumduir Irujinxumdarson:
Landsmótsspá
í frjálsíþró tíu m
Þegar ritstjóri Skinfaxa, Stein-
þór Pálsson, fór þess á leit við mig
að ég tæki að mér að spá um úrslit
í einstökum geinum í frjáls-
íþróttakeppni landsmótsins
ákvað ég að slá til. Eg er einn
þeirra sem gaman liafa að spá,
þessi spá er í gamni gerð en öllu
gamni fylgir nokkur alvara. Ég
reyni að vera hlutlaus í mati mínu
þó einhverjum þyki það mistak-
ast.
Það er í raun og veru óheyrileg
bjartsýni að ætla að spá urn úrslit í
einstökum greinum í frjálsum
íþróttum u.þ.b. tveimur mánuð-
um fyrir landsmót og keppnis-
tímabilið vart hafið. I þessum
spádómum mínum styðst ég við
árangur einstaklinga frá 1980.
I'ek tillit til þess sem ég veit um
æfingasókn í vetur, svo og hvernig
ákveðnir einstaklingar standa sig
í harðri keppni. Það á nefnilega
misvel við menn að taka þátt í
stórmóti sem landsmóti UMFÍ.
Þeir taugasterkustu hafá meiri
sigurmöguleika og mikils er um
vert að hafa keppnisreynslu.
A Landsmótinu á Akureyri
kemur fram fjöldi af nýju fölki, og
ég spái því að 60-80% verðlauna
falli í skaut þeirra sem ekki hafa
hlotið verðlaun á landsmóti áður.
Margir taka þátt í mótinu í fyrsta
sinn og gamlar kempur sjást nú í
síðasta sinn á brautinni. Þetta er
gangurinn. Flest landsmótsmetin
falla trúlega en sum þeirra lifa að-
eins vegna verðurs þ.e.a.s. efmeð-
vindur mælist of mikill. Þó held ég
að árangur Hreins Halldórssonar
og Guðrúnar Ingólfsdóttir í kúlu-
varpi og þrístökk Karls Stefáns-
sonar standi óhögguð eftir. Trú-
lega falla a.m.k. 8-10 met hvernig
sem viðrar.
Eitt er það sem gerir erfiðara að
spá um úrslit í einstökum grein-
um en það er óvissan um það
hvaða greinar þeir fjölhæfustu
velja sér. I þeim tilfellum hef ég
valið þá leið að taka viðkomandi í
allar liugsanlegar greinar. Má
nefna Rögnu Erlingsdóttur HSÞ
sem dæmi í þessu sambandi.
Lesendur athugið að spá þessi
er gerð um 2 mánuðum fyrir
landsmót.
KRRlflR:
100 m hlaup.
Erlingur Jóhannsson UMSB,
Gísli Sigurðsson UMSB, Kristján
Harðarson UMSK, Egill Eiðsson
UIA ogjón Þ. Sverrisson cru lík-
legastir til að bejast um fyrstu sæt-
in en HVÍ, HSK og HSÞ liafa
alltaf átt góða spretthlaupara.
Þeir gætu komið á óvart nú. Verði
veður hagstætt gæti landsmóts-
metið fallið.
1. Gísli Sigurðsson
2. ErlingurJóhannsson
3. Egill Eiðsson.
400 m hlaup.
Verði veður hagstætt gætu 2-4
hlaupið undir núverandi lands-
mótsmeti, sem fellur örugglega
hvernig sem viðrar. Egill Eiðsson
Egill Eiðsson, Uí A.
12
SKINFAXI