Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1981, Side 15

Skinfaxi - 01.06.1981, Side 15
líklegastar til að sigra í þessari grein. Fleiri gætu þó blandað sér í þá baráttu, þeirra á meðal sigur- vegari frá síðasta landsmóti, Bergþóra Benónýsdóttir HSÞ. Lítið hefur heyrst frá henni að undanfornu, en liún hefur dvalið í Svíþjóð. Líklegra er þó að ungar og efni- legar „hlaupastelpur” setji alla spádóma úr skorðum. Svafa Grönfeldt UMSB, Helga D. Árnadóttir UMSK, Linda Bents- dóttir UMSK, Ragnheiður Jóns- dóttir HSK og margar íleiri veita systrunum vafalaust keppni. Trú- lega fellur landsmótsmetið í þeirri baráttu. 1. Ragna Erlingsdóttir 2. Hólmjríbur Erlingsdóttir 3. Svaja Grönjeldt 400 m hlaup Hrönn Guðmundsdóttir er sig- urstranglegust og stórbætir lands- mótsmetið. Hörð barátta verður um næstu sæti og hugsanlega geta allt að sex stúlkur hlaupið undir núverandi landsmótsmeti. Unnur Stefánsdóttir HSK, Ragna Erl- ingsdóttir HSÞ, Hólmfríður Erl- ingsdóttir UMSE, Ragnheiður Jónsdóttir HSK, Svafa Grönfeldt UMSB, Berglind Erlingsdóttir UMSK, Laufey Kristjánsdóttir HSÞ, Guðrún Karlsdóttir UMSK og Anna B. Bjarnadóttir UMSB gætu verið í toppbarátt- unni. 1. Hrónn Guðmundsdóttir 2. Unnur Stejánsdóttir 3. Berglind Erlingsdóttir 800 m hlaup Það verður mikill darraðadans í þcssari grein og árangur mun jafnari en áður. Þessar stúlkur koma helst til með að berjast um fyrstu sætin: Guðrún Karlsdóttir UMSK, Hrönn Guðmundsdóttir UMSK, Laufey Kristjánsdóttir HSÞ, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir Guðrún Karlsdóttir, UMSK. HSK, Unnur Stefánsdóttir HSK, Anna B. Bjarnadóttir UMSB og Elín Blöndal UMSB. Þá má búast við að UIA-stúlkur komi á óvart eins og á síðasta landsmóti. Trú- lega hlaupa 2 — 4 stúlkur undir landsmótsmeti. 1. Hrónn Guðmundsdóttir 2. Guðrún Karlsdóttir 3. Laujey Kristjánsdóttir 1500 m hlaup Þegar þetta er skrifað bendir allt til þess að tíminn 5:00,0 á landsmóti gefi aðeins sjötta sætið. Keppni í þessari grein verður mjög skemmtileg og ég spái því að hún verði hápunktur frjáls- íþróttakeppninnar. Guðrún Karlsdóttir er líklegust til að koma fyrst í mark, en Laufey Kristjánsdóttir verður ekki langt á eftir. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir HSK, Sigurbjörg Karlsdóttir UMSE, Llnnur Stefánsdóttir HSK, Elín Blöndal og Helga Guðmundsdóttir UMSB, Guð- rún Magnúsdóttir UÍA og e.t.v. einhverjar fleiri verða með í bar- áttunni. 1. Guðrún Karlsdóttir 2. Laujey Kristjánsdóttir 3. Aðalbjörg Hajsteinsdóttir 100 m grindahlaup Margt óvænt getur gerst í þess- ari grein. Oneitanlega eru syst- urnar Hólmfríður og Ragna sig- urstranglegar ásamt Bergþóru Benónýsdóttur. Arney Magnús- dóttir UÍA, Guðrún Höskulds- dóttir UMSE, Anna B. Bjarna- dóttir UMSB, íris Jónsdóttir UMSK, María Guðnadóttir HSH og fíeiri geta þó sett strik í reikninginn. /. Ragna Erlingsdóttir 2. Hólmjríður Erlingsdóttir 3. Arney Magnúsdóttir 4x 100 m boðhlaup Keppni í boðhlaupinu verður trúlega jafnari en áður. Sveit HSÞ sigraði með yfirburðum á Selfossi, en á tæplega miklar sigurvonir nú. Heyrst hefur að Ragna hugi á fél- agsskipti yfir í UMSE. Verði það staðreynd sigrar UMSE-sveitin með miklum yfnburðum. Aðrar sveitir sem verða í baráttunni eru hugsanlega: UMSK, HSK, UMSB og jafnvel HSÞogUÍA. /. UMSK 2. HSK 3. UMSE Langstökk Svafa Grönfcldt virðist vera lík- legust sem sigurvegari. Hún verð- ur ekki auðsigruð. Hún hefur sýnt vaxandi öryggi og hefur mikið keppnisskap. Baráttan um önnur sæti verður hörð og koma eftir- taldar helst til greina: Ragna Erl- ingsdóttir HSÞ, Hólmfríður Erl- ingsdóttir UMSE, Nanna Sif Gísladóttir HSK, Arney Magnús- dóttir UÍA, Helga D. Árnadóttir UMSK og Ingveldur H. Ingi- bergsdóttir UMSB. /. Svaja Grönjeldt 2. Ragna Erlingsdóttir 3. Arney .\lagnúsdótlir Hástökk María Guðnadóttir hlýtur að sigra í þessari grein á landsmót- inu. Hún var í sérflokki UMFÍ- SKINFAXI 15

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.