Skinfaxi - 01.06.1981, Qupperneq 19
Eríend
sam-
skifrti
Frá utanferð eftir Landsmótið á Selfossi. Hluti þátttakenda að snæðingi.
UTHNF6RÐ fiÐ LOKNU IflNDSMÓTI
Eins og eftir undanfarin landsmót verður
efnt til utanfarar frjálsíþróttafólks að loknu
lansmóti á Akureyri í sumar. Farið verður til
Danmerkur og keppt við AAG (Aarhus Amts
Gymnastikforening) sem verður gestgjafi
UMFÍ þarna úti en gagnkvæm samskipti hafa
skapast á milli þessara tveggja aðila.
Fargjaldið er áætlað um 2500 kr og er ætl-
unin að það skiptist á fjóra aðila svo sem venja
hefur verið um utanferðir á vegum UMFI, þ.e.
einstaklingur greiðir 1/4, félag hans 1/4, hér-
aðssambandið 1/4 og UMFÍ 1/4. Að sjálf-
sögðu er þetta undir samkomulagi komið því
UMFI skipar ekki fyrir í þessum efnum frem-
ur en öðrum. Það eru hinsvegar vinsamleg
tilmæli til þeirra sem í hlut eiga að málið verði
leyst á þennan hátt.
Þeir sem valdir eru til fararinnar eru tveir
fyrstu í hverri grein og er reiknað með 45
manna hóp í allt.
Farið verður út 21. júlí og korrtið heim 10
dögum seinna eða þann 31. AAG hefur sent
tillögu um dagskrá þessa daga og lítur hún
þannig út.
DflNSKUR SVNINGflRFLOKKUR
Fimleikafiokkur frá DDGU, dönsku ung-
mennafélögunum, mun sækja 17. Landsmótið
heim í boði Landsmótsnefndar og UMFI.
Flokkurinn sem kemur frá Hobro Gymna-
stikforening er einn af bestu sýningarflokkum
DDGU og er nýkominn úr sýningarferð um
Bandaríkin. I flokknum éru 29 manns og þar
meðtaldir fararstjórar og þjálfarar. Danirnir
dvelja hér á landi í 10 daga, auk þess sem þeir
sýna á landsmótinu, ferðast þcir um og skoða
landið.
Samskipti á milli UMFÍ og DDGU eru orð-
in mikil og hefur t.d. sýningarflokkur komið
frá þeim á nokkur síðustu landsmót. Auk þess
hefur UMFI farið á öll landsmót þeirra nema
eitt frá 1961, mótin hjá þeim eru haldin 5.
hvert ár. Núna, í byrjun júní, hefur hópur frá
UMSB haldið utan, fyrst og fremst til æfinga
en einnig mun hópurinn taka þátt í landsmóti
Dananna fyrir hönd UMFÍ.
Skinfaxi vill óska þeim góðs gengis ytra en
nánar verður sagt frá ferð þessari síðar í blað-
inu.
S.P.
1. dagur Komudagur, fólki komið fyrir í skóla.
2. dagur heimsókn í Ráðhús Árósa, hringferð um bæinn, viðkoma í íþróttavöruverslun. Æfing á Árósavelli.
3. dagur Frjálsíþróttamót, dagurinn frjáls að öðru leyti.
4. dagur Skoðunarferð: Skógur, strönd, Víkingasafnið og Moesgaardsafnið („safnið við vatnið”).
Kvöldið: Þjóðdanskvöld, framlag frá Islandi og heimamönnum.
5. dagur Heimsókn í Danmarks Radio, annars frjáls dagur.
6. dagur Liðakeppni ÁlAG—UMFÍ. Kvöldið með Dönum, söngur, kvikm.sýningar.
7. dagur Ferðalag — ekki ákv. ennþá hvert verður farið.
8. dagur Æfing á Árósavelli, danskir þjálfarar til staðar á vellinum fyrir íslendingana.
Kvöldvaka í umsjá UMFl.
9. dagur Heimsókn á danskan bóndabæ, dagurinn að öðru leyti frjáls til æfinga eða annars.
10. dagur Heimferð.
SKINFAXI
19