Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1981, Page 22

Skinfaxi - 01.06.1981, Page 22
SKÓlflMÓT UMS€ Hinu árlega skólamóti Ung- mennasambands EyjaQarðar, hinu 8. í röðinni, lauk nú fyrir stuttu með knattspyrnukeppni við Þelamerkurskóla. Það var á þingi UMSE í Hrafnagilsskóla sem fyrst var hreyft við þeirri hug- mynd að koma á keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum milli skól- anna á sambandssvæði UMSE. Þessir skólar voru Arskógsskóli, Dalvíkurskóli, Hrafnagilsskóli, Hríseyjarskóli, Húsabakkaskóli og Þelamerkurskóli. Tilgangur keppninnar var fyrst og fremst að auka tengsl skólanna sín á milli, koma á nánari kynnum nemenda skólanna og gefa nemendum tæki- færi til að öðlast reynslu í keppni, til að æfa og keppa við betri skil- yrði, en aðstaða við skólana er ákaflega mismunandi t.d. er að- eins íþróttahús við einn þessara skóla og aðrir hafa ekki tök á að æfa sund yfir vetrarmánuðina. Samband skólanna hefur auk- ist verulega á þessum árum, nem- endur hafa tengst hver öðrum og eru oft sem einn sameinaður hóp- ur er þeir hittast. Auðvitað stend- ur hver með sínum skóla, margir láta vel í sér heyra, með hvatning- arhrópum og baráttusöng. En þau kunna einnig að taka ósigri, klappa þá hvað mest fyrir sínum mestu og skæðustu mótherjum, hafi þeir farið með sigur af hólmi. Margt af okkar besta íþrótta- fólki sem nú síðustu ár hefur verið að keppa fyrir hönd UMSE, hlaut sína fyrstu eldskírn einmitt í skólakeppni UMSE, hlaut þar reynslu sem hefur komið þeim til góða í hinni ströngu keppni ung- mennafélaganna. Keppnisgreinar í þessu skóla- móti eru skák, frjálsar íþróttir, skíðaganga, sund og knattspyrna. Hefur verið keppt til skiptis í skól- unum eftir því hvaða aðstöðu hver og einn skóli hefur getað boð- ið uppá, t.d. er frjálsíþróttamótið ætíð haldið á Dalvík í eina íþrótta- húsinu á sambandssvæðinu. Knattspyrnan hefur einnig verið nokkuð hefðbundin við Hrafna- gil, þó nú í vor hafi verið brugðið út af vananum. Þelamerkurskóli hefur verið ákaflega sigursæll í þessari keppni. Fyrst var keppt í einum flokki, eða nemendum í 8. bekk og yngri, var keppt á þann hátt frá fyrsta ári, 1974 til ársins 1979 og vann þá Þelamerkurskóli í öll skiptin. Árið 1979 var keppninni breytt þannig að keppt var í tveimur fiokkum, það er að segja í eldri fiokki eru nemendur 8. og 9. bekkjar, en í yngri fiokki nemend- ur 7. bekkjar og yngri. Þelamerk- urskóli vann báða flokkana þetta árið en árið 1980 tókst Árskógs- skóla að stöðva sigurgöngu Þela- merkurskóla og unnu þeir yngri fiokkinn en Þelamerkurskóli eldri fiokkinn sem fyrr. Nú í ár tókst Þelamerkurskóla að vinna báða llokkana enn einu sinni, eldri fiokkinn með miklum yfirburðum en þann yngri eftir harða baráttu við Árskógsskóla. UMSE hefur öll þessi ár gefið áletraða gripi sem skólarnir hafa unnið til eignar, fyrir fiest stig samanlagt í hverri íþróttagrein og þrír efstu keppendur í einstakl- ingsgreinum hafa fengið árituð verðlaunaspjöld. Fyrir sigur í hcildarkeppninni hefur UMSE gefið farandbikar sem keppt er um í cldri fiokki en Sveinn Jóns- Hið sigursæla skálið Þelamerkurskóla, yngri deild. F.v.: Heimir Finns- son, Magni Gunnarsson, Eyjólfur Hilmarsson og fyrir framan Haukur Steinbergsson. 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.