Skinfaxi - 01.06.1981, Qupperneq 26
Frá afmælissýningunni. Þeir sem tóku þátt í henni ganga í kringum stærðar afmælistertu.
Margrét Bjamadóttir
tekin tali
íþróttafélagið Gerpla í Kópa-
voginum hefur verið vel starfandi
og vakið mikla athygli á undan-
íornum árum. Til að leita frétta af
starfsemi félagsins tókum við við-
tal við Margréti Bjarnadóttur for-
mann félagsins.
\largrét,jélagib á 10 ára ajmœli
í ár, ekki satt?
Jú félagið átti 10 ára afmæli
laugardaginn 25. apríl s.l., til að
minnast þess héldum við afmælis-
sýningu í íþróttahúsi Kennarahá-
skólans. Þátt í sýningunni tóku
stúlkur og drengir úr íimleika-
deild. Troðfullt hún var og þurfti
fólk m.a. að sitja á gólfinu. Dag-
inn eftir var svo efnt til kafíisam-
sætis þar sem ýmsum framá-
mönnum og eldri félögunum var
boðið. Þá var félaginu færðar
margar gjaíir.
Síðan er meiningin að halda af-
mælismót í haust hjá öllum deild-
um félagsins.
Þá verður gefið út afmælisblað
síðar á árinu. Að lokum má geta
þess að við höfum sótt um lóð til
Kópavogs, í tilefni afmælisársins,
til byggingar íþróttahúss og þá
með félagsaðstöðu.
Rekur Gerpla sjáljl íþróttahúsið
sem þið æjið nú í?
Iþróttahúsið rekum við al-
gjörlega sjálf og höfum við nýver-
ið gengið frá framhaldsleigu til 5
ára. Nýlega var byrjað að innrétta
svæði í húsinu sem áður stóð ónot-
að, en verið er að gera lítinn sal
upp á búningsklefum. Þar verður
aðstaða fyrir júdómenn, ballett-
slár og speglar, gufubað og kaffi-
stofa auk tilheyrandi búnings-
klefa. Þá verður hægt að nota
þetta svæði sem áhorfendasvæði
með því að leggja niður þann vegg
sem snýr að aðalsalnum.
Hvað með áhöldJyrir jimleika?
Ahöld til fimleikaæfinga hafa
mjög háð starfseminni t.d. hafa
engin áhöld verið fyrir fimleika
drengja. Fyrirhugað er að kaupa
inn og fá lánuð áhöld frá öðrum
félögum nú í sumar þannig að öll
áhöld fyrir drengjafimleika verða
til í haust. Síðast liðið haust var
rokið til og safnað fyrir jafnvægis-
slá og er hún væntanleg til lands-
ins bráðlega. Þetta er keppnisslá
af bestu gerð en hingað til höfum
við notast við slá sem smíðuð var
heima í l)ílskúr. Einnig höfum við
pantað dýnur til að setja í kring-
26
SKINFAXI