Skinfaxi - 01.12.1981, Síða 12
Pálmi Gunnarsson til í slaginn.
Frá fjöruferð, gengið í gegnum klett.
Iþrótta-
búbir
HVÍ
Dagana 19. — 28. júlí voru
starfræktar íþróttabúðir á vegum
Héraðssambands Vestur-Isíirð-
inga að Héraðsskólanum að Núpi
í Dýralirði. Námskeiðið var vel
sótt og voru þátttakendur um 70.
Leiðbeinendur voru 3, þau Anna
Bjarnadóttir, Ingólfur Björnsson
og Hilmar Pálsson. Auk þessa var
haft samstarf við þjóðkirkjuna og
var séra Dalla Þórðardóttir full-
trúi hennar. Hún sá um morgun
andakt, kristilega vinnubók og
kvöldandakt.
Börnin voru 7-12 ára og
komu bæði frá stöðum innan og
utan svæðis HVI, þ.e. frá Isafirði,
Bolungarvík, Súðavík, Suðureyri
og Þingeyri. Dagskrá búðanna
var mjög (jölbreytt. Krakkarnir
stunduðu frjálsar íþróttir, sund,
knattleiki, fimleika, trampolin,
ratleiki, víðavangshlaup, göngu-
ferðir og briddað var upp á nýj-
ung sem var kennsla í að kasta
svifdisk (frisbee) og leikir tengdir
því. Einnig voru kvikmyndasýn-
ingar, l)itigó, kvöldvökur sem
börnin sú um og þrumandi diskó.
Einnig héldu krakkarnir dagbók
l'yrir hvern dag og var ritun henn-
arski|)t niðurá herbergin. Haldið
12
SKINFAXl