Skinfaxi - 01.12.1981, Qupperneq 29
lega á mikilli uppleið, hjá okkur
eru nú tveir fl., stúlkur yngri og
eldri. S.l. vetur var haldin ráð-
stefna um kvennaknattspyrnu þar
sem málefni hennar voru rædd og
kom þar fram mikill áhugi.
I deildinni hafa aldrei verið
fleiri lið en nú en þau voru alls 7,
mun færri árið áður. Mesta aukn-
ingin varð í Bikarkeppni kvenna
en þar kepptu 12 lið.
Hvað eru margir Jíokkar hjá Jélag-
inu og hver erþátttakaykkar í mótum?
Við erum eina liðið sem er mcð
alla flokka í mótum, þá á ég við
karla- og kvennaflokki í Islands-
mótinu og alla þá flokka í Bikar-
keppninni sem keppt er í.
Flokkar félagsins eru nú 7 tals-
ins. M.fl. karla, 1., 2., 3., 4., 5.,
6.fl. og síðan eru stúlkurnar eins
og áður segir skipt í tvennt, yngri
og eldri.
Þátttakendur eru margir en erf-
itt er að gefa upp ákveðna tölu þar
sem mikill hluti kemur og fer, æfir
ekki reglulega.
Sem dæmi um fjöldann þá voru
á skrá í 6. ílokki í sutnar á milli 40
og 50 krakkar.
EJvið vendum okkar kvæði í kross og
förum að tala um kvennaknaltsþymu.
Hvað gelurðu sagl okkur um ykkar
harðsnúna kvennalið?
I fyrra fóru þær í keppnisferða-
lag, sú fyrsta sem íslenskt kvenna-
lið fer, til Danmerkur og Svíþjóð-
ar og kornu heim taplausar. Þær
léktt m.a. við danska liðið Fem-
ina sem var fyrir nokkrum árum
eitt sterkasta lið í heimi. Það kom
mjög á óvart hvc góðar þær voru.
Það var m.a. vegna þrýstings frá
þessari ferð að landsliði í kvenna-
knattspyrnu var komið á í sumar.
Ólafur Björnsson í hörkubaráttu inni í vítateig.
Barist af hörku um boltann, frá leik við í A.
Icikmanna að vilja komast út og
spila knattspyrnu með bestu lið-
um heims.
Hvað viltu segja um þau ummæli
erlends þjálfara, sem kom með lið hmg-
að til lands í sumar, að engin áhuga-
mannalið séu til. Petta séu dulbúin
atvinnumannalið?
Það er ekki skrýtið að menn úti í
heimi haldi þctta. Það eru mjög
góðir leikmenn hér og ótrúlegt að
þeir nái svo góðum árangri sem
raunar ber vitni því hér koma
engar greiðslur til leikmanna á
neinn hátt.
Stúlkurnar unnu þá bikara sem
keppt var um í sumar, þær unnu
Islandsmótið og Bikarkeppnina
sem var nú í fyrsta skipti en UBK
gaf farandbikar til hennar og kom
henni af stað. Þá sigruðu þær
Bautakeppnina sem fram fór á
Akureyri.
Kvennaknattspyrna er greini-
SKINFAXI
29