Skinfaxi - 01.12.1981, Page 31
Mark?
AranguryngriJlokkanna?
Arangur yngri flokkanna ber
hæst ’74. Við erum óánægðirmeð
árangurinn sl. 2 ár, vegna þess að
við höfum á árunum þar á undan
átt marga Islandsmeistara og vel-
gengni að fagna. Það er eins og
þetta hafi dottið niður sl. tvö ár.
Það er að vísu komið annað félag í
bæinn, mannskapurinn dreifist á
þessi tvö lið en engu að síður tel ég
það ekki orsökina. Það er nóg til af
knattspyrnumönnum í Kópavogi
fyrir tvö félög.
Við þurfum að gera átak í yngri
fokkunum, rífa upp starfið. I
Breiðablik gerum við okkur nefni-
lega ekki ánægða með að eiga
sæmilega góða yngri flokka eftir
að hafa átt marga Islandsmeist-
ara.
Hvernig er aðstaða Jyrir knalt-
spyrnumenn í Kóþavoginum?
Aðtaðan er að okkar mati ein sú
besta á landinu. Að vísu ríkir ó-
fremdarástand með æíingarað-
stöðu fyrir yngri llokkana. Það
vantar malarvöll niður í Kópa-
vogsdal, en yngri flokkarnir æfa
núna svo til eingöngu á Vallar-
gerðisvelli. Þar er nú orðið von-
laust að koma fyrir öllum llokkum
vegna Ijölda æfinga.
Pið hafið kvenfélag í lengslum við
deildina er það ekki óvenjulegt?
fón Einarsson á fleygiferd með boltann.
Nei, ekki svo, nokkur önnur lél-
ög eru einnig með kvenfélög en
sennilega eru þau kvenfélög alls
félagsins.
I kcnfélaginu eru áhugakonur
um knattspyrnu og er starfið hjá
þeim fyrst og fremst tvíþætt. Ann-
ars vegar styrkur við deildina t.d.
við vinnu í sjoppu á Kópavogs-
velli og hins vegar eru þær með
námskeiðshald yfir vetrarmánuð-
ina fyrir félagskonur.
Að lokum, hve margir verða Islands-
meistaratitlamir á ntesta ári?
Erfið spurning en við stefnum
að því að standa okkur sem best í
öllum ílokkum. Oneitanlega yrði
það gaman að eignast eitthvað af
Islandsmeistaratitlum og er eng-
inn vafi á því að við eignumst ein-
hverja slíka.
Númer eitt er að vera mcð og
leika drengilega og skemmtilega
knattspyrnu eins og sæmir góðu
ungmennafélagi.
Skinfaxi tekur heilshugar undir
lokaorð JónsInga, þakkarhonum
fyrir spjallið og óskar Breiðabliks-
mönnum góðs gengis í framtíð-
inni. § p
SKINFAXI
31