Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1986, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.06.1986, Blaðsíða 5
tíma form. í Umf. Húnar og í stjórn USAH, en lagði ekki kapp á að vera það lengi. Það er mikið og óeigingjarnt sjálfboðastarf sem unnið er í ungmenna- félögunum, og verður að vera það áfram ef þau eiga að halda gildi sínu. “Ekki minni þýðingu í dag en áður” Finnst þér ungmennufélögin hafa sömu þýðingu í dag og áður? - Þjóðfélagið hefur auðvitað breyst, en hlutverkið kannski ekki nákvæmlega hið sama og áður. En það hlutverk heldur þó fullu gildi sínu að halda uppi félags- og íþróttastarfi er laðar að ungt fólk til hollra verka. Þetta hefur ekki minni þýðingu í dag en áður, það er því afar mikilvægt að það æskulýðs- og íþróttastarf sem rekið er á vegum ung- mennafélaganna haldi áfram af miklum þrótti. Það unga fólk sem tekur þátt í þessu góða starfi, hverfur þá ekki að einhverju óhollara á meðan. Er nægilega vel búið að þessari starfsemi af liálfu ríkisvaldsins að þínu mati? - Um það má náttúrlega alltaf deila, hvort ríkið býr nægilega vel að hinni frjálsu félagsstarfsemi í landinu. Ríkisvaldið leggur nokkurt fé til þess- arar starfsemi, en megin starfið byggist auðvitað á félögunum sjálfum. Þeim peningum er vel varið sem renna til þessarttr starfsemi, því ef hún væri rekin af ríkinu, væri um stórar fjárupphæðir að ræða. Auðvitað mætti segja að það væri vel varið meiri peningum í þessu skini en gert er í dag, en þó hafa íþrótta- og æskulýðsmál fengið verulega aukningu hin síðustu ár. Svo má ekki gleyma öllu því fé er ríkið leggur til byggingar íþrótta-mannvirkja í landinu. Finnst þér vera rétt blutfall á milli UMFÍog ISl við úthlutun fjárlaga? - Lengst af hefur það verið þannig, að það hefur fylgst að nokkuð hlutfallslega fjárframlag til UMFÍ og ÍSÍ, og þess hefur verið nokkuð vel gætt í fjár- veitinganefnd. Nú en hins vegar gerðist það, að ég held í fyrra, að það kom afbrigðileg hækkun til ÍSÍ og því var ekki að fullu fylgt eftir hlutfallslega til UMFÍ, þó UMFÍ fengi dágóða hækkun. “Þurfum afreksmenn” Leggjum við of mikla áherslu á afreksíþróttir? - Nei, það finnst mér ekki. Auðvitað er megintilgangurinn sá að fá sern flesta til þátttöku í íþróttaiðkun. En miðlungs- menn kveikja ekki eldmóð. Til þess þarf afreksmenn. Hvenær sem afreks- menn koma fram, hafa þeir gífurleg áhrif. Þeir draga að sér athygli fjöldans, verða fyrirmynd ungmenna og fá fjölda æskufólks til að trúa því að það geti líka náð langt í íþrótt sinni, leggi það næga alúð við æfingar. Félagsstarf og barátta forystumanna fyrir almennings- íþróttum eiga sér betri bandamenn í afreksmönnum en marga grunar. Viltu segja eitthvað að lokum? Já ég óska ungmennafélagshreyf- ingunni alls hins besta. Eg hef séð það mér til ánægju að starfsemin lætur engan bilbug á sér finna, og er vaxandi. Það starf sem hún vinnur hefur gífur- lega mikið gildi fyrir æskufólk, og þjóðina í heild. Því má ekki slaka á, heldur halda starfinu áfram af dugnaði og áhuga hér eftir sem hingað til. Ég þakka þér kærlega fyrir spjallið og óska þérogþínum alls hins besta í framtíðinni. Guðmundur Gíslason Skinfaxi 3. tbl. 1986 5

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.