Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1986, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.06.1986, Blaðsíða 11
út til Spánar. En það má þó geta þess að áður en ég fór frá Þýskalandi fékk ég tilboð frá Göppingen, en það varð ekkert úr því þar sem Leverkusen stóð fast á því að fá greiðslu fyrir mig. Eftir að þú ert búinn að vera hér heima íþrjú ár ferðu til Spánar, hvemig kom það tii ? Það var á Olympíuleikunum í Los Angeles 1984 sem þeir hjá Tres De Mayo fylgdust með mér og höfðu svo samband við mig þarna úti. En það var Klaus Helgren markvörðurinn sænski sem benti þeim á mig, en hann lék þá með þeim. Hvemig leist þér á í fyrstu að fara til Kanaríeyja til að spila handbolta? - Eg var nú nokkuð tvístígandi í þessu fyrst, það hafði nú alltaf verið draumurinn að fara eitthvað en á þetta leist mér ekki fyrst þar sem ég þekkti ekkert til þarna. Mér kom fyrst í hug þegar minnst var á Kanaríeyjar, túristar og baðstrendur en ekki handbolti. Þeir komu hingað heim og sömdu við mig, þannig að ég kynnti mér ekki aðstæður áður en ég samdi við þá. Síðan fer ég út um miðjan september og kem beint inní deildarkeppnina. Var þetta mikið öðru vísi en þú bjóst við? - Já þetta var nú allt öðru vísi en ég hafði gert mér í hugarlund. Ég hélt að það væri ekki spilaður handbolti í þeim gæðaflokki sem hann er. En það er mjög vel búið að handboltanum á Spáni, það eru alltaf einhver fyrirtæki sem standa að baki íþróttafélögunum og styrkja þau fjárhagslega. Þá er mjög mikil umfjöllun um íþróttir í öllum fjölmiðlum á Spáni bæði sjónvarpi og blöðum, það er mjög algengt að sjónvarpað sé um allan Spán hinum ýmsu leikjum. Og þá ekki eingöngu hjá toppliðunum heldur líka þeim yngri þ.e. yngri flokkunum í ymsum íþrótta- greinum. En það er mjög vel hugsað um unglingastarfið á Spáni og hugsað langt fram í tímann þ.e. þeir eru með langtíma markmið í huga eins og Ólympíuleikana 1992 sem þeir vona að verði í Barcelóna. Hvernig voru móttökurnar er þú komst fyrst út? - Þær voru mjög góðar en erfiðar því um leið og við lentum á Kanaríeyjum vorum við drifin á mikla hátíð þar sem verið var að kynna leikmenn liðsins næsta tímabil. Og varð ég að fara upp á svið þar sem ég var kynntur fyrir nokkur hundruð manns sem voru í salnum auk þess var sjónvarpið þama líka. Það er óhætt að segja það að mér hafi nú ekki liðið neitt sérlega vel þama fyrir framan allt þetta fólk, nýkominn frá íslandi og hafði ekki kynnst neinum né aðstæðum. Þetta eru örugglega eftir- minnilegustu móttökur sem ég hef fengið ennþá. Strákamir í liðinu eru ennþá að hlæja að því hvað ég var feiminn og bjánalegur á sviðinu. En hvernig hefur ykkur svo líkað þarna? - Okkur hefur líkað mjög vel, þetta er mjög gott félag og ekker venjulegt myndi ég segja eða eins og stór fjölskylda, og staðið við allt sem samið var um og er alveg sama hvort vel gangi eða illa. Þó voru nú fyrstu mánuðirnir erfiðir og var það þá aðallega tungumálaerfiðleikarnir sem gerðu það. En við töluðum ekki spænsku og þeir svo til ekkert í ensku, þannig að þetta varð allt saman erfitt í byrjun. En í dag er þetta mjög gott, við erum komin inn í málið og svo kom Einar Þorvarðar og fjölskylda út í fyrra, þannig að okkur fannst við ekki vera || "I'am afraid..." eins einangruð og áður. Af því að ég sagði að þeir töluðu mjög takmarkaða ensku, dettur mér í hug smá atvik sem kom fyrir rétt eftir að við komum út. Þegar við fórum til Portúgals til að taka þátt í Evrópukeppninni, hafði ég sáralítið kynnst stjórnarmeðlimum persónulega og þekkti t.d. forseta félagsins ekki neitt. Vindur þá einn þeirra sér að mér og segir "I’ am afraid that the president is coming with us". Mér brá við og hélt að "The president" væri eitthvað fúlmenni, sem reyndist öðru nær. En þessi tiltekni stjórnar- maður notar orðið "Afraid" sem; Ég held. Ef hann er t.d. spurður hvenær brottför sé, svarar hann kannski "At eight o’ clock I’ am afraid". Hafa ekki önnurfélög reynt að fá þig til sín? - Jú! Það voru 3 spönsk félög og eitt þýskt sem vildu fá mig til sín, en ég vildi það ekki og samdi aftur við Tres De Mayo til tveggja ára. En ég get hætt eftir eitt ár ef mér sýnist svo. Nú hefur þú verið mjög flughræddur, hefurþað eitthvað breyst? - Já það hefur svo til farið alveg af mér þessi flughræðsla sem ég var haldinn mjög lengi. En við þurfum að fljúga nijög langt og oft í útileiki á kepp- nistímabilinu, þannig að maður fer að venjast þessu. Ég var hér áður mjög flughræddur og oft strítt á þessu. Það Þrír Víkingar á bekknum, f.v. Sigurður Gunnarsson,Viggó Sigurðsson og Guðjón Guðmundsson liðsstjóri Skinfcixi 3. tbl. 1986 11

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.