Skinfaxi - 01.06.1986, Blaðsíða 37
Einnig sungu þeir söngva sem honum
voru kærir og hann hafði æft með
þeim. Nemendur ÍKÍ og íþróttakennarar
sýndu ennfremur, þar á meðal æfingar
sem stúlknaflokkur ÍKÍ sýndi 1949 á
Linghátíð í Stokkhólmi. Ræður og
ávörp voru flutt til minningar um
Bjöm. Sögusýning var sett upp í hliðar-
herbergjum, þar sem þættir úr ævi
Björns komu fram á myndum og
munum.
Minning þessi tókst vel og var þeim
sem framtakið öxluðu til sóma. Verðug
var þessi aldarminning fómfúsum hug-
sjónamanni.
Þorsteinn Einarsson
Heimsókn á skrifstofu UMSB
Nú nýlega opnaði UMSB skrif-
stofu fyrir sambandið að
Dílarhæð 1 í Borgamesi. Þegar
ritstjóri Skinfaxa leit þar við um
daginn var nýráðinn framkvæm-
dastjóri sambandsins Ingimundur
Ingimundarson í óð og önn að
koma henni í stand. Ingimundur
sagði að þetta myndi breyta miklu
í allri starfsemi sambandsins, þar
sem UMSB hefði ekki lengi haft
fasta skrifstofu. Skrifstofan er á
góðum stað í Borgamesi og í
alfaraleið fyrir alla sem leið eiga
Ingimundur önnum kafin á skrifstofu UMSB
Upplagseftirlit
Verslunarráðs íslands
Skinfaxi er aðili að upplagseftirliti Verslunarráðs íslands
sem felst í þ»ví að kanna upplög dagblaða og tímarita. Nú
nýverið birti Verslunarráðið tölur yfir seinni hluta síðasta
árs. Þar kemur fram að dreifing Skinfaxa á þessu tímabili
var sem hér segir:
4. tbl. 2393 eintök
5. tbl. 2362 —
6. tbl. 2400 —
Þessi könnun sem birtist núna tók einkum mið af greiddum
eintökum en ekki prentuðum. Þá kemur í ljós að það eru
aðeins 1392 sem greitthafa áskriftargjaldið fyrir 1985, og
hlýtur það að vera ungmennafélagsrorystunni og blaðinu
mikið áhyggjuefni að ekki innheimtast betur askriftar-
gjöldin. Því er full ástæða til að hvetja menn til að greiða
askriftargjaldið sem allra fyrst, en gíróseðill fylgir blaðinu
núna fynr árið 1986.
Leiðrétting
í síðasta blaði urðu þau
mistök að mynd sem átta að
vera af Má Hermannssyni úr
UMFK var mynd af Hannesi
Hrafnkelssyni með kolvit-
lausum myndatexta. Um leið
og við biðjumst velvirðingar á
þessum mistökum birtum við
mynd af Má Hermannssyni úr
UMFK hér fyrir neðan.
Skinfcixi 3. tbl. 1986
37