Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1986, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.06.1986, Blaðsíða 6
Frá flækingi til frægðar Grein um rokksöngvarann og knattspyrnuáhugamanninn Rod Stewart Texti: Krístján Krístjánsson Rod Stewart ættu flestirað þekkja. Þessi rámi söngvari hefur gert lög eins og "Maggie may, Sailing, Do ya think I'am sexy” o.fl. lög mjög vinsæl. Ekki hefurheyrst mikið frá Stewart undanfarið en hann rýfur þögnina þessa dagana með nýrri plötu sem ætti að koma á markaðinn mjög fljótlega, efhún er ekki þcjjar komin. En leiðin til frægðar var ekki auðveld fyrir Rod Stewart eins og svo marga aðra listamenn. Her verður rakin æska Stewart og leið hans til frægðar. í lok seinni heimsstyrjaldarinnar, þann 10. janúar 1945 fæddist í London lítill rauðhærður hnokki sem var skírður Roderic David Stewart. Faðir hans Robert, var skoskur en móðir hans ensk. íþróttir Rod Stewart hafði ekki mjög mikinn áhuga á tónlist sem krakki. Það var fótboltinn sem átti hug hans allan. Rod var mjög áhrifagjarn frá föður sínum en faðir hans var þjálfari í fótbolta. Á þessum tíma höfðu faðir Rod og bróðir hans Ron stofnað fótboltalið sem hét "Highgate Redwings", og í raun þjálfaði faðir hans þrjú fótboltalið. Á þessum tíma var ekkert annað í huga Rod Stewart en að gerast atvinnumaður í fótbolta og voru flestir sammála að hann hefði hæfileika til þess. Skrítinn krakki Rod Stewart gekk mjög vel í skóla, en var ætíð talinn hálf-skrítinn af öðrum krökkum, aðallega út af því að hann hlustaði ekki á rokk og roll eins og aðrir gerðu á þessum tíma. Uppáhaldið hans var A1 Jolson, söngvari sem á þessum tíma hafði dáið fyrir 25 árum. Aftur á móti er haldið að það hafi verið vegna áhrifa frá föður hans, en faðir hans hlustaði nær eingöngu á A1 Jolson. A1 Jolson varð mjög frægur á sínum tíma vegna samskipta sinna við nafna sinn Capone. Kvöld eitt eftir að Jolson hafði verið að skemmta í klúbbi einum í Chicago var bankað á hurðina í búningsherbergi hans og stóð lítili og sköllóttur náungi við dyrnar og sagði "Gott kvöld, ég heiti Af. Jolson varð að gera svo vel að spila í tvo og hálfan tíma fyrir A1 Capone. Þetta var í fyrsta skiptið sem Rod fékk einhvern áhuga á tónlist og það varð til að hann keypti sér sinn fyrsta gítar. Hann spilaði á skólaböllum og spilaði m.a. með bræðrunum Ray og Dave Davis sem síðar urðu frægir með hljómsveit sinni "The Kinks" sem gerði síðar meir lög eins og " You really got me og Lola" ódauðleg. Með vaxandi tónlistaráhuga fór áhugi Rod á fótbolta minnkandi, föður hans til mikillar armæðu. Að endanum ákvað Rod að hætta fótboltanum alveg. Er talið að Rod hafi verið undir áhrifum frá frænda sínum í þetta sinn. Hann sagði einhvern tímann við Rod að það væri auðveldara að lifa á tónlist en fótbolta. Rod vildi líka fara að ferðast og skoða heiminn. En þótt að Rod Stewart hætti að spila fótbolta fyrir alvöru mjög snemma, þá hefur hann enn þann dag í dag geysilegann áhuga á fótbolta. Reyndar það mikinn áhuga að það nálgast fanatík. Hann eltir skoska landsliðið á röndum í einkaþotu sinni og frægt vár þegar hann elti landsliðið hingað til íslands í fyrra (1985). Flækingur Þegar Rod var 16 ára ákvað hann að hætta í skóla og fara og skoða heiminn. Hann fór á flakk um Evrópu með banjó eins farangurs. Hann fór ásamt nokk- rum félögum sínum og voru þeir algjörlega peningalausir. Þeir fóru á puttanum um alla Evrópu, sváfu á járnbrautarstöðvum og í anddyrum fótboltavalla. Og lifðu þeir á betli og leið vel að eigin sögn. I dag segir Rod Skinfaxi 3. tbl. 1986 6

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.