Skinfaxi - 01.06.1986, Blaðsíða 33
"Pá helst aðstöðu- og tækjaleysi"
Spjallað við Hreiðar Gíslason framkvæmdastjóra UDN
Texti og myndir: Guðmundur Gislason
Fyrir skömmu var Hreiðar
Gíslason ráðinn sem framkvæm-
dastjóri og þjálfari hjá UDN í
sumar. Heiðar er Siglfirðingur að
uppruna, en hefur búið í Hafnar-
firði undanfarin ár. Hann lauk
stúdentsprófi nú í vor og hyggst
reyna að komast inn í íþrótta-
kennaraskóla íslands næsta vetur.
Til að fræðast nánar um starfs-
svið hans hjá UDN, ræddi ég
stuttlega við hann fyrir skömmu.
Hvemig stóð á því að þú réðst þig til
UDN?
Mér bauðst þetta starf í gegnum
frjálsfþróttadeild FH, en ég hef starfað
þar mikið við þjálfun, bæði í frjálsum
og knattspyrnu.
Var það eitthvað sérstakt sem heillaði
þig við þetta starf.?
- Það er þá helst þjálfunin, en hún er
mjög stór þáttur í mínu starfi. Ég
ferðast á milli félaganna sem eru fjögur
og held æfingar, en ég held til í
Búðardal og bý þar á elliheimilinu.
Hvaða íþróttir muntu aðallega þjálfa ?
- Það eru frjálsar mest, en svo einnig
knattspyrna, því á sumum stöðunum
vilja menn skipta æfingunni í tvennt
og hafa fyrst frjálsar og svo knatt-
spyrnu.
Takið þið þá þátt í deildarkeppninni í
knattspyrnu?
Nei við tökum bara þátt í
héraðsmótum.
Hvað kom þér einna mest á óvart er þú
komst til starfa?
- Ég veit það nú ekki, það er þá helst
aðstöðu- og tækjaleysi.
Muntu einnig sjá um fjármál sambands-
ins?
- Nei! Ég verð mest í þjálfuninni og
svo að sjá um mótahald, en gjaldkeri og
formaður UDN sjá um fjármálin. Og ég
fæ mjög góðan stuðning frá stjóminni
og þá sérstaklega formanninum honum
Sveini. Fyrri framkvæmdastjórar hafa
ekkert verið í þjálfun né séð um
mótahald, nú breyta þeir því þannig að
ég kem ekkert nálægt útgáfustarfinu.
Þér lístþá bara vel á starfið?
- Já! Ég held að það sé ekki hægt að
segja annað, þetta er spennandi verkefni
að fást við og ég er bjartsýnn á
sumarið.
Ég vona að þetta gangi vel hjá
þér, og þakka fyrir spjallið.
Samvinnutryggingar styrkja UMSE
I vor er aðalfundur Sanivinnutrygginga var haldinn á
Akureyri færðu forráðamenn Samvinnutrygginga UMSE
veglega gjöf sem voru 250.ooo kr. Er ekki að efa það að
þessi myndarlega gjöf mun koma UMSE vel, þar sem
helsta vandamáí félagasamtaka er fjárskortur. Um leið er
þessi gjöf viðurkenmng á starfi UMSE og óskar Skinfaxi
sambandinu til hamingju með þetta um leið hann lýsiryfir
ánægju sinni með þetta framtak Samvinnutrygginga.
Guðrún Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri
UMSE á skrifstofu sambandsins
Skinfcixi 3. tbl. 1986
33