Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1986, Qupperneq 9

Skinfaxi - 01.06.1986, Qupperneq 9
Umf. Selfoss 50 ára Í0^S> Það var mikið um að vera á Selfossi þann 1. júní s.l. þegar Ungmennafélag Selfoss hélt upp á 50 ára afmæli sitt. Undirbúningur hafði verið allt frá áramótum. Nefndir höfðu verið skipaðar í hin ýmsu störf og allt gert til að gera alla hluti sem hátíðlegasta. Það má eiginlega segja að afmælishátíð- in hafi hafist föstudagskvöldið þann 30. maí þegar 30 ungmenni, uppá klædd í búningi félagsins, heimsóttu hvert heimili á Selfossi og afhentu íbúunum Bjöm Gíslason form. Umf. Selfoss með bikarinn frá UMFÍ afmælisrit félagsins sem hefur að geyma sögu félagsins síðustu 10 árin ásamt viðtölum, ávörpum og öðrum Frá grillveislunni miklu fróðleiksmolum. Dagskráin hófst klukk- an tvö með skrúðgöngu frá hinu nýja félagsheimili Selfyssinga, Ársölum. Hinn nýi búningur félagsins sem hannaður hafði verið í tilefni af afmæl- inu, setti töluverðan svip á gönguna. Skrúðgangan endaði fyrir framan gamla Kaupfélagið og hófst þar ein mesta grillveisla sem haldin hefur verið á Selfossi. Grillaðar voru tugir kílóa af pylsum og máttu allir borða eins og þeir gátu í sig látið og renna því niður með Kakómjólk eða Gosa. Um kl. 20 voru saman komin í Ársölum hátt á fjórða hundrað manns til að gleðjast yfir 50 ára afmæli félagsins. En jafnframt því var þetta fyrsta opinbera samkoman í hinu Verið að skera af afmælistertunni glæsilega félagsheimili. Bjöm Gíslason formaður setti hátíðina, Sigurður Ingi- mundarson formaður afmælisnefndar tók til máls og Hafsteinn Þorvaldsson flutti sögulegt yfirlit. Ungmennafélaginu voru afhentar margar Hörður S. Óskarsson heiðursfélagi Umf. Selfoss veglegar og góðar gjafir og mátti hvarvetna sjá góðan hug til starfsemi þess. Að loknum ávörpum gesta fór fram afhending heiðursviðurkenninga. Björn Gíslason form. afhenti þar afreks- mönnum í íþróttum og dugnarðarfork- um í félagsstarfinu, allt mönnum sem unnið hafa fyrir félagið af elju og áhuga, gull- eða silfurmerki félagsins. Einnig var Hörður S. Óskarsson gerður að heiðursfélaga, en hann reif félagið upp til vegs og virðingar á sínum tíma sem for-maður um nokkurra ára skeið. Til að kóróna vel heppnaða háu'ð sá Leikfélag Selfoss um skemmtidagskrá og að henni lokinni var stiginn dans. HK/DH Birgitta Guðjónsdóttir og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir í hinum nýju búningum Umf. Selfoss Með þeim á myndinni er Halldór Einarsson í Henson Skinfaxi 3. tbl. 1986 9

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.