Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1986, Page 10

Skinfaxi - 01.06.1986, Page 10
Þeir em nú sennilega ekki margir sem fylgjast með handbolta er ekki kannast við Sigurð Gunnarsson. En hann hefur verið einn af máttarstólpunum í landsliði okkar undan farin ár, og leikur nú með spænska félaginu Tres De Mayo a Kanaríeyjum. En peir eru sennilega færri sem vita að Sigurður var og er mjög góður knattspyrnumaður oy var meðal annars í unglingalandsliðinu og lékþa ímarki. Þá lék hann með hinu sigursæla liði Umf. Áustra á Eskifirði í 2. deild 1978 sem lenti í 6. sæti og hefði getað lent ofar. En ég náði eimitt að spjalla við Sigurð fyrir stuttu á Eskifirði þar sem hann var í fríi hjá tengdaforeldmm sínum og hafði greinilega komið með spánarveðríð með sér. Því það var logn og heiðskýrt með um 25 stiga hita, þrátt fyrir það settumst við inn og hófum spjallið. Hvenær byrjarðu að stunda íþróttir? - Ætli ég hafi ekki verið í 5. flokki er ég byrjaði í handboltanum og þá í Fram, því á þessum tíma var Víkingur ekki með 5. flokk. Ég lék með Fram í 5. og 4. flokki, og þá voru menn eins og Gústaf Björnsson og Jón Arni í sama flokki hjá Fram. En ég byrjaði í knattspyrnunni um leið og ég gat farið að sparka bolta og gekk í Víking þar sem það var félagið í hverfinu. Varstu í einhverjum fleiri íþróttum? Já ég var líka í körfubolta hjá Ármanni upp í 3. flokk. Um það leiti fer ég að gera upp hug minn í sambandi við hvaða grein ég veldi. Og varð handboltinn fyrir valinu, og kom það sennilega mest til af því að mér bauðst að fara á handboltaskóla á Laugarvatni. Á sama tíma var ég valinn í unglingalandsliðið í knattspyrnu sem átti að keppa á Norðurlandamóti unglinga, en eins og áður sagði valdi ég handboltann. Eftir þetta varð fótboltinn bara dútl og gaman, en ekki sem aðalfþróttagreinin hjá mér. Þú ert nú samt eitthvað í fótboltanum þó handboltinn sé orðinn aðalgreinin. Já ég lék t.d. með Austra hér á Eskifirði sumarið 1978, 1982 og þjálfaði svo hjá félaginu sumarið 1980, og þá lék ég með og þjálfaði hjá Hrafnkeli Freysgoða 1979. Þannig að ég iagði nú ekki knattspyrnuskóna alveg á hilluna. Hvenær spilaðirðu þinn fyrsta mfl. leik í liandbolta? - Það var þegar ég var 17 ára, þá voru í liðinu kallar eins og Rósmundur, Viggó og Björgvin Björgvinsson. Karl Benediktsson var þá þjálfari og er ég viss um að hann hefur verið á undan sinni samtíð sem þjálfari, því hann var þá farinn að koma með skipulegri bolta heldur en hafði tfðkast fram að því. Þú ferð svo til Þýskalands 1980, hvernig kom það til? - Þetta var eftir Heimsmeistarakeppni 21 árs og yngri þar sem við náðum góðum árangri. En Vlado Stensel varþá ráðgjafi hjá Bayer Leverkusen og fékk Viggó Sigurðsson til félagsins, sem síðan benti á mig. Þeir höfðu samband við mig um mitt sumar 1980 og fór ég út um miðjan ágúst með alla fjöl- skylduna. Hvernig gekk þér svo hjá Leverkusen? Svona sæmilega, ég var óheppinn og sleit liðbönd stuttu eftir að ég kom út og átti nokkuð lengi í þeim meiðsl- um. Eftir að ég var búinn að ná mér gekk mjög erfiðlega fyrir mig að komast í liðið, það verður þó að geta þess að ég var nijög ungur, ekki nema rétt liðlega tvítugur. Hjá Leverkusen var mjög góður mannskap- ur á þessum tíma, og eru margir af þessum leikmönnum þekktir í dag með öðrum félögum. Þá höfðum við þrjá þjálfara þetta keppnistímabil, en þjálf- arar voru látnir fara ef þeir náðu ekki árangri. Það má segja að við höfum verið svona jójó-lið, gátum unnið góð lið en tapað svo fyrir lélegum. || "Lenti í stappi við þá" Hvernig stóðu þeir við samninga? - Ég lenti nú eiginlega í stappi við þá allt þetta tímabil. Þeir stóðu illa við gerða samninga, og að lökum var ég orðinn svo þreyttur á þessu að ég ákvað að fara heim til íslands. Og næstu þrjá vetur lék ég með Víking áður en ég fer 10 Skinfaxi 3. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.