Skinfaxi - 01.06.1986, Page 18
Sundbikar UDN
SAMVINNUBANKI ISLANDS HF.
Þarftu aö kynna þér lánamöguleika?
Innlánsreikninga? Vaxtakjör? Eða aðra
þætti bankaþjónustu?
í Spjaldhaga Samvinnubankans finnur
þú gagniegar upplýsingar um þjónustu
bankans:
H-vaxtareikningur Samvinnubankans er
óbundinn sparireikningur, verðtryggður með
vöxtum. Hann ber í upphafi almenna spari-
sjóðsvexti sem stighækka. Kjör H-vaxtareikn-
ings eru reglulega borin saman við kjör 3 og
6 mánaða verðtryggðra reikninga bankans.
Reynist kjör verðtryggðu reikninganna betri
leggst Hávaxtaauki við áunna vexti H-vaxta-
reiknings.
Verðtryggðir reikningar Samvinnubankans
eru bundnir í 3, 6,18 og 24 mánuði. Vextir
leggjast við höfuðstól um áramót og eru lausir
til útborgunar næstu 12 mánuði þar á eftir.
Reikningarnir eru verðtryggðir miðað við láns-
kjaravlsitölu.
Sparivelta, Húsnæðisvelta, Ferðavelta
og Launavelta veita allar rétt til láns eftir
ákveðnum reglum sem háðar eru tímalengd
viðskipta og innlánum reikningseigenda.
í Spjaldhaga Samvinnubankans finnurþú
nánari upplýsingar um þessa þætti og aðra í
þjónustu bankans, t.d. erlendan gjaldeyri, VISA-
greiðslukort, vaxtakjör, gengisskráningu og
margt fleira.
Bankinn gefur út ný spjöld eftir þörlum - þú
skiptir um I þínum Spjaldhaga. Þannig hefur þú
alltaf við höndina réttar upplýsingar um þjón-
ustu Samvinnubankans.
Þjónusla
IDÍna
Til fróðleiks
má geta þess að orðið Spjaldhagi
er ekki nýyrði heldur er Spjaldhagi forn
þingstaður Eyfirðinga. Árið 1492 var haldiö þar
þriggja hreppa þing og frá sama ári er til .
skiptabréf gert í Spjaldhaga. I sóknarlýsingu
Grundar- og Möðruvallasóknar frá 1840 nefnir
síra Jón Jónsson (1787-1869) Spjaldhagahól
„hvar til forna var og enn skal sjást leifar af
einum dómhring."
Okkur fannst orðið hins vegar vel við hæfi og
ákváðum að glæða það nýrri merkingu.
Líttu inn í næsta Samvinnubanka og
fáðu Spjaldhaga - eða hringdu og við
sendum þér hann.
SPJALDHAGI - ALLAR UPPLÝSINGAR Á EINUM STAÐ
Veistu allt sem
þú þarft að vita um
bankamál?
Á síðasta ársþingi UDN
sem var s.l. vor tilkynnti
Pálnu Gíslason, form.
UMFI að UMFÍ myndi
gefa sambandinu bikar til
að keppa um á sundmóti
sambandsins. Og nú í
sumar var keppt um
þennan bikar í íyrsta
skipti, og hlaut Umf.
Afturelding hann en það
hlaut 162 stig.
Hér á eftir koma úrslitin í
stigakeppninni
1. Umf. Afturelding 162 stig
2. Umf. Stjarnan 60 stig
3. Umf. ólafur Pái 38,5 stig
4. Umf. Æskan 24,5 stig
5. Umf. Dögun 16,o stig
Vormót UDN
Vormót UDN var haldið á
Búðardalsvelli 5. júlí s.l.
Og sá Umf. Ólafur Pái um
undirbúning mótsins, en á
mótið mættu keppendur frá
öllum aðildarfélögum
sambandsins. En úrslit í
stigakeppni urðu þessi:
1. Umf. Ólafur Pái 204 stig
2. Umf. Stjarnan 71 stig
3. Umf. Afturelding 42 stig
4. Umf. Dögun 36 stig
5. Umf. Æskan 24 stig
Besta árangur mótsins
samkvæmt stigatöflu vann
Hálfdán Knstinsson í
kúluvarpi 990 stig, en
hann varpaði 14,39 m.
18
Skinfaxi 3. tbl. 1986