Skinfaxi - 01.06.1986, Page 24
"Byrjuð að undirbúa þátttöku
okkar á næsta landsmóti"
Segir Páll Pétursson framkvæmdastjóri USVS
Texti: Guðmundur Gíslason
Á framkvæmdastjóranámskeiði
UMFÍ sem haldið var að
Varmalandi í Borgarfirði náði ég
að spjalla stuttlega við Pál
Pétursson nýráðinn framkvæmda-
stjóra USVS. En hann tók við
því starfi fyrir stutt og verður í
sumar og jafnvel /ram yfir
landsmótið 1987. Áður hafði
hann verið gjaldkeri sambandsins
í nokkur ár.
Hvað er helst á döfinni hjá ykkur í
sumar?
- Það er aðallega héraðsmót og svo
sýslukeppnin, þ.e. keppni á milli
USVS og USÚ í fijálsum íþróttum
sem búin er að vera lengi í gangi. Svo
erum við byrjuð að undirbúa þátttöku
okkar á næsta landsmóti þ.e. á
Húsavík, og var skipuð sérstök nefnd í
það á síðasta þingi.
Hvernig gengur útgáfustarfsemin?
- Það stendur til að breyta forminu á
fréttabréfinu þ.e. fara úr A-4 og í þessa
algengu stærð fréttabréfa sem er A-5.
Þá er hugmyndin hjá landsmótsnefnd-
inni að gefa út sérstakt landsmótsblað,
sem væri þá líka fjáröflunar-leið fyrir
þátttöku okkar á mótinu sem er alltaf
kostnaðarsöm, þó misjafnlega eftir hvar
mótið er hverju sinni.
Hvemig fjármagnið þið starfið?
- Það hefur verið einkum hingað til
með dansleikjahaldi og skemmtunum,
þetta hefur gefið okkur ágætar tekjur.
Svo er það aðgangseyrir á heraðsmót og
sala á vellinum.
Hvar er besta aðstaðan hjá ykkur?
- Það er í Vík, og segja þeir sem til
þekkja að þar sé besti grasvöllur á land-
inu. Þá er verið að koma upp nýjum
velli á Klaustri.
Hvemig er íþróttaáhuginn á svæðinu?
- Hann er svona þokkalegur, og er í
dag einkum bundinn við frjálsar. í fyrra
og árið þar áður voru félög í
deildarkeppninni í knattspymu, en hafa
alveg hætt því núna, því það var of
kostnaðarsamt. Bæði voru ferðalögin
dýr og svo þjálfararnir.
Styrkja sveita- og bæjarfélögin ykkur
eitthvað?
- Það er nú frekar lítið, því þau styrkja
ungmennafélögin í sinni heimabyggð
og segjast þar með vera búin að styrkja
hreyfinguna.
Þakka þér fyrir Páll og gangi
þetta allt vel hjá ykkur.
Breyting á heimilisfangi áskrifenda
Eins og oft áður, þá viljum við biðja
áskrifendur blaðsins að tilkynna okkur
ef þeir breyta um heimilisfang. Það vill
koma nokkuð oft fyrir að við fáum
blöð endursend vegna þess að kaupandi
er fluttur og ekki vitað hvert. Hægt er
að fá á pósthúsum eyðublað eins og hér
til hliðar þar sem menn geta fyllt út
breytinguna á heimilisfangi og sent
okkur sér að kostnaðarlausu. Munið því
eftir þessu ef þið breytið um heim-
ilisfang, svo að blaðið komist beint til
ykkar en liggi ekki einhvers staðar í
reiðuleysi, eða verði endursent.
24
Skinfaxi 3. tbl. 1986