Skinfaxi - 01.06.1986, Qupperneq 26
V ísnaþáttur
Skinfaxa
í síðasta þætti sendi Steinþór
Þráinsson skólastjóri á Laugum,
boltann til Þuríðar Ásvaldsdóttur
Ökrum Reykjadal með eftir-
farandi fyrripörtum.
1. Andi minn er ofaná
undir botninn þinn.
2. Til þín syngur ástaróð
unga bringu þenur.
3. Þingeyskt blóð á þingi voru
þynnist enn.
Andi menn er ofaná
undir botninn þinn.
Æskan djörf og ellin grá
etja kappi um sinn.
Til þín syngur ástaróð
unga bringu þenur.
Halur slyngur heillar fljóð
hana í dyngju venur.
Þingeyskt blóð á þingi voru
þynnist enn.
Enn þá finnast öðru hvoru
afbragðs menn.
Það brugðu að sjálfsögðu fleiri á
leik, og ónefndur sendir okkur
vísumar svona.
Andi minn er ofaná
undir botninn þinn.
í jafnvæginu þraukar þá
þyngdarpunkturinn.
Þingeyskt blóð á þingi voru
þynnist enn.
Það má yngja öðru hvoru
afbragðs menn.
Fyrripartur Steinþórs númer
tvö, bauð uppá hringhendu, en
það hefur greinilega farið
framhjá þeim ónefnda, því eftir
botnum hans að dæma hefði það
ekkert vafist fyrir honum að
halda áfram í sama dúr.
En botninn sem hann sendir við
þennan fyrripart er svona.
J.S. hefur vísurnar svona þ.e.
hann sleppir hringhendunni.
Andi minn er ofaná
undir botninn þinn.
Þessa stöðu þekkja má
þráinn góði minn.
Þingeyskt blóð á þingi voru
þynnist enn.
Álpast þangað öðru hvoru
aðrir menn.
Þráinn gaf raunar fáa valkosti í
þessari vísu, sem sést best á því
hvað botnamir eru líkir, allir
með sömu rímorðum þótt þeir
séu sinn úr hvoru landshorninu.
Þuríður sendir boltann áfram til
Áma Jónssonar á Öndólfs-
stöðum, með eftirfarandi fyiri-
pörtum.
Reyndu nú að ríma við
rýra fyrríparta.
Lán og gæfa leiki við
landsins syni og dætur.
Þegar húmar hausti að
hér á Norðurlandi.
Hún gleymdi, eða vissi etv. ekki
um þá hefð að einn þeirra ætti
að bjóða uppá hringhendu, en
greinilega hefði hún ekkert átt í
vanda með slíkt. Við bætum því
þessum við, sem Árni getur
botnað ef hann vill.
Að heilsa biður þjóðin þér
þetta er siður góður.
Árni á svo auk þess að botna, að
senda boltann áfram til einhvers
hagyrðings með þremur fym-
pörtum.
Með bestu kveðju
Ásgrímur Gíslason
Til þín syngur ástaróð
Þuríður botnaði þetta í snar- unga bringu þenur.
heitum og lét Steinþór hvergi ÖII sín fögm unaðsljóð
eiga hjá sér. að einu lagi venur.
26
Skinfaxi 3. tbl. 1986