Skinfaxi - 01.06.1987, Qupperneq 9
Þeir eru þá settir í að kasta sem hæst og
ráin hækkuð í samræmi við köst þeirra.
Metið í þessu er 17 fet og 8
þumlungar, það á Capes. Hann er mjög
sterkuríþessarigrein. Sjálfuráég 17fet.
Mér skilst að Hreinn Halldórsson
hafi sett heimsmet áhugamanna, eins og
það er víst kallað. Þá er kastað með
báðum höndum. Margir af bestu
kúluvörpurum í heimi hafa keppt mikið í
Hálandaleikum. Sem dæmi um það má
nefna Bandaríkjamanninn Brian Old-
field sem komið hefur hingað til lands til
keppni í kúluvarpi. Hann á met í því að
kasta steinum í stað kúlna, 22 punda
steinum. Það met er eitthvað yfir 50 fet.
-Svo ætlið þið að toga skip í
Húsavíkurhöfn.
“Jú, sú er víst hugmyndin. Við
eigum eftir því sem mér skilst að draga
bát eða skip ákveðna vegalengd inn á
höfnina, að landi.
En svo er Hjalti Ámason mjög
áhugasamur um að keppa í svonefndu
Cumberland Wrestling eða Kumbara-
landsglímu. Hann keppti nefnilega í
þessari glímutegund um daginn þegar við
vorum í Skotlandi og lagði alla með
miklum glæsibrag, svo brakaði írifjum...
En þessi glíma mun hafa verið
tíðkuð hér á landi til foma, eftir því sem
Þorsteinn Einarsson segir mér. Þannig að
þetta er alveg jafn íslensk gh'ma og hún er
skosk. Þá taka menn yfirtök yfir öxl og
undirtök undir handarkrika og læsa svo
saman höndum á baki andstæðings.
Hjalti vill ólmur keppa í þessu á
Landsmótinu.”
-Þennan Higgins þekkir fólk síður
en Geoff Capes. Hver er Higgins?
“Hann var þjálfari hjá Capes í
keppninni Sterkasti maður heims í Nice í
Frakklandi. Higgins hefur keppt í einum
fimm mismunandi greinum íþrótta fyrir
Bretland á alþjóðlegum mótum, mjög
fjölhæfur maður. Nú er Higgins ekki
lengur keppandi fyrir Bretland á
áhugamannamótum þar eð hann er
atvinnumaður í íþróttum. Ég held samt
ég gcti sagt að hann sé besti
kúluvarparinn í dag á Bretlandseyjum,
kannski ef maður sleppir Capes. Higgins
er 24 ára, jafn gamall Hjalta, og 2.07 m.
á hæð. Capes er hins vegar orðinn 38 ára
gamall og nokkuð lægri í loftinu.”
-Nú ert þú mikið á ferðalögum um
heiminn. Er svona mikið af aflrau-
nakeppnum?
-Jú, það er mikið um þess konar
mót og keppnir. Ég var til dæmis í Japan
um daginn. Þar eru alþjóðleg mót í alls
kyns kraftaþrautum eins og er víða um
heim. Ég hef fengið mikið af
símhringingum frá Japan eftir að ég var
þar. Þar er verið að gera sjónvarpsþátt á
vegum stórxa sjónvarpsstöðva um alls
kyns kraftaþrautir. Þeir vilja fá menn
víða að til að gera mismunandi hluti.
Rífa símaskrár, höggva í sundur
trjástofna í kapp við tíma, velta bflum og
svo framvegis. Einn Japaninn hringdi í
mig um daginn og talaði ekki mikla
ensku. Ég spurði hann hvað ég ætti að
gera nákvæmlega. Þá svaraði hann
aðeins: “You have to show your power!
Einfalt mál.
En fólk virðist hafa óskaplega
gaman af að sjá alls kyns útfærslur af
aflraunum. Ég var í Sandgerði á
Sjómannadaginn, nú fyrir stuttu. Þar
vakti það einna mesta kátínu þegar ég
velti bfl út í sjó, af hafnargarðinum.
Sumirþar hafaþað vístfyrir sið að leggja
bflum ólöglega á hafnargarðinum og það
fer auðvitað í taugamar á sjómönnunum.
Því var ég fenginn til að gera þetta
mönnum til hrellingar og áminningar.
Krakkamir stóðu agndofa. Það er
kannski ekki rétt að segja þetta...það
stóðu þama nokkrir þriggja, fjögurra ára
púkar og spurðu mæður sínan “Mamma,
er Jón Páll sterkari en guð?”
IH
húsavíkur
JOGUKI
MJÓLKUflSAMl^«>H0S/"W
HÚsaVÍKUR
JOGIÍRT
K.Þ. HUSAVÍÞ
MJÓLKURSAMLAG
KAUPFÉLAGS ÞINGEYINGA
HÚSAVÍK
SKINFAXI
9