Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 12
Húsavík Þegar Landsmót gengur í garó virðast þessar nyjungar fyrst og fremst beinast að því að draga fjölskyldufólk á Landsmótið en einnig fólk sem er ekki aðeins að sækjasteftiríþróttahátíð heldur einnig almennri skemmtan og samneyti við fólk. Það sem á sjálfsagt eftir að vekja einna mesta athygli í sambandi við Landsmótið er Víkingurinn, tákn mótsins og Víkingaleikarnir. Víkingurinn hefur birst víða, á bolum, plakötum, merkjum og að sjálfsögðu hér á forsíðunni. Hvað Víkingaleikana varðar, vísast í viðtal við Jón Pál Sig- marsson hér í blaðinu. A Húsavík verður mikið lagt upp úr því að hafa nóg fyrir börnin að gera fyrir utan íþróttakeppnina. Þar má nefna að Brúðubíllinn vinsæli úr Reykjavík verður á Húsavík yfir Landsmótsdagana, sérstakt reiðhjólarallí á svonefndum BMX hjólum og kassabílarallí. Þá hefur Leikfélag Húsavíkur áformað að gera sitthvað skemmtilegt fyrir bömin. Húsvíkingar hafa kosið að nefna bæinn sinn “Lifandi bæ” yfir Landsmótsdagana (og sjálfsagt eitthvað lengur). Til að standa undir því verður boðið upp á lifandi tónlist á götum úti af ýmsum tegundum, leiklistaratriði, sýningar og fleira. Og til þess að auka á fjölbreytileika menningarbragsins hefur Landsmótsnefnd gert samning um að fá Alþýðuleikhúsið til að setja upp leikritið “Eru tígrisdýr í Kongó?”. Verk þetta vakti mikla athygli þegar það var sett upp í vetur í Reykjavík. Það er finnskt að uppmna og fjalla um tvo rithöfunda sem hafa fengið það óvenjulega verkefni að skrifa gamanleik um eyðni. Heilbrigðisyfirvöld í landinu hafa sýnt þessu verki mikinn áhuga og telja það mikilvægt innlegg í barátuna gegn eyðni hér á landi. Leikritið verður sýnt á Húsavík 10., 11. og 12. júlí. Kynningin á Landsmótinu á Húsavík hefur verið geysimikil og HSÞ menn hafa náð hagstæðum samningum Guðni Halldórssori á fullu. þar um við stærstu fjölmiðla landsins. Sjónvarpað verður beint frá hluta Landsmótsins, Morgunblaðið verður með sérstaka blaðhluta Landsmóts- dagana og aðrir helstu fjölmiðlar land- sins verða með fréttamenn á staðnum. Útvarpsauglýsingar eiga að glymja í hlustum landsmanna fyrir mótið í gegnum útvarp, allsérstæð auglýsing hefur verið gerð fyrir sjónvarp og áfram má telja. Er því óhætt að fullyrða að aldrei hafi Landsmótið verið betur kynnt en nú. Hljómsveitin Skriðjöklar hafa tekið þátt í kynningu Landsmótsins með því að leika tvö mögnuð lög inn á hljómplötu sem heita “Mamma tckur slátur” og “Á Landsmót”. Margir ættu að vera farnir að kannast allvel við þessar tónsmíðar, hið síðarnefnda er þegar þetta er skrifað komið vel á veg á toppinn á vinsældarlista nokkurra útvarpsstöðva í landinu. Platan er nú til sölu hjá öllum héraðssamböndum á landinu og sjálfsagt víðar. Fjölmiðlafarganið er sem sagt tekið með trompi. Og hvemig hefur undirbúningur svo gengið á Húasvík? “Allvel”, segir Guðni Halldórs- son, framkvæmdastjóri Landsmótsins. Sá staður sem verður einna helst í brennidepli hér á landi dagana 9. til 12. júlí í sumar er tvímælalaust Húsavík. 19. Landsmót UMFÍ er ekkert “ekkert mál”, heldur kostar undirbúningur slíks “mannvirkis” þrotlausa vinnu og mikið skipulag. En það eru heldur engir aukvisar sem taka það að sér að skipuleggja og halda slíkt mót, Héraðssamband Suður- Þingeyinga (HSÞ). Landsmótið í ár (haldið 3. hvert sumar) verður hið umfangsmesta og og sjálfsagt best kynnta Landsmótið til þessa. Það verður með nokkuð ólíkum brag frá öðrum Landsmótum hingað til. Það var markmið Landsmótsnefndar HSÞ strax frá upphafi, að hresssa upp á umgjörð Landsmóts UMFÍ. Hún hefur verið með nokkuð svipuðu sniði undan- Þuríður Guðmundsdóttir, UMSE og Helga Siguijónsdóttir USÚ. farin Landsmót og þótti því ástæða til að reyna eitthvað nýtt. Og það verður svo sannarlega reynt ýmislegt nýtt. Skoðaðar í heild 12 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.