Skinfaxi - 01.06.1987, Síða 17
LAN DSMÓTSSPÁ
Köst
íris Grönfeldt, Soffía Rósa
Gestsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir,
Guðbjörg Viðarsdóltir, Birgitta
Guðjónsdóttir, Hildur Harðardóttir, Jóna
Pctra Magnúsdóttir, Unnur og fleiri
hraustar stelpur mæta galvaskar til leiks
en hvernig þær skipta með sér
verðlaunum má guð einn vita. Það sakar
þó ekki að reyna að spá.
Spjótkast
1. íris Grönfeldt. UMSB
2. Birgitta Guðjónsdóttir HSK
3. Hildur Harðardóttir HSK
Kúluvarp
1. Guðbjörg Gylfadóttir USAH
2. Soffía Rósa Gestsdótúr HSK
3. íris Grönfeldt UMSB
Kringlukast
1. Soffía Rósa Gestsdótúr HSK
2. íris Grönfcldt UMSB
3. Jóna Petra Magnúsdóttir UÍA
Birgitta Guðjónsdóttir, HSK.
Eins og áður segir, spái ég HSK sigri
í frjálsíþróttakeppninni. UMSK verður í
öðru sæti, UÍ A í þriðja sæti og UMSE í
fjórða sætinu.
Eg spái þ ví ennfremur að stigin skip-
tist þannig:
HSK 160 stig
UMSK llOstig
UÍA 95 stig
UMSE 80 stig
Vonandi verður lítið að marka þessa
spá mína. Það er nefnilega alltaf
skemmtilegt þegar óþekkt nöfn skjóta
upp kollinum og koma á óvart. Ef veður
verður hagstætt má búast við að mörg
Landsmótsmet sjái dagsins ljós. Lfldega
verða þau á bilinu lOtil 15. Þarafverða
sett met í öllum kastgreinum karla.
Eitt er víst að frjálsíþróttakeppni
Landsmótsins verðursú langsterkastafrá
upphafi. Þessi staðreynd er athyglisverð
þegar haft er í huga að frjálsíþróttir hér á
landi eru í öldudal um þessar mundir, í
það minnsta gagnvart þeim sem fylgjast
með úr fjarlægð.
Jón Sævar Þórðarson
Boðhlaupssveit UMSK frá síðasta Landsmóti. Púkinn í Jóni Sævari spáir klúðri í boðhlaupinu á Húsavík
1 7
SKINFAXI