Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 29
LANDSMÓTSSPÁ Starfsíþróttir. Höfða til allra Starfsíþróttir eiga sér langa sögu. Árið 1953 var Stefán Ól. Jónsson ráðinn hjá U.M.F.Í. til að efla útbreiðslu þeirra í landinu. Vöktu þær strax mikinn áhuga allra sem með þeim fylgdust. Einbeiting við jurtagreiningu á Landsmóti á Húsavík. Á Landsmótum frá 1955-1975 er keppt í 8 greinum, en fyrir landsmótið á Sclfossi er þeim fækkað í 6, og í dag standa eftir þessar: Línubeiting, dráttarvélaakstur, jurtagreining, hestadómar, lagt á borð og hestadómar auk starfshlaups. Þykir mér eftirsjá að t.d. pönnukökubakstri og blómaskreytingu. Þessar íþróttir höfða til allra og gefa Landsmótum sérstakan svip. Öll héraðssambönd hafa möguleika á að þjálfa fólk í starfsíþróttum og eimitt nú þegar heimilisfræðikennsla er skyldunám í skólum landsins, prófs er krafist af þeim sem aka dráttarvélum, og umræða er um aukna þörf á hverskonar verknámi. Stofna mætti til keppni milli skóla og glæða með því enn frekar áhuga ungs fólks á verklegum greinum, en það var ætlunin þegar starfsfþ)róttir hófu feril sinn með svo kölluðu 4. H klúbbum í Bandaríkjunum. Halla L. Loftsdóttir. Frá 1971 hef ég fylgst með starfsíþróttum bæði sem keppandi og starfsmaður H.S.Þ. og hef ég orðið vör við sívaxandi áhuga mótsgesta fyrir þessum keppnisgreinum en aðstaða fyrir keppendur og áhorfendur verið misgóð. Þá hefur komið í ljós að mismikil áhersla er lögð á starfsíþróttir hjá hinuin ymsu héraðssamböndum þó sá undirbúningur þurfi ekki að vera kostnaðarsamur. Undirbúningur fyrir keppni í starfsíþróttum á Landsmótinu nú í sumar er langt kominn og reynt verður að skapa sem besta aðstöðu fyrir keppendur og lögð áhersla á staðsetningu keppninnar á mótssvæðinu svo allir eigi greiðan aðgang að áhorfendasvæðinu. Viljum við hjá H.S.Þ. því hvelja öll héraðssambönd til að senda sem ílesta keppendur til leiks á Húsavík. SPARISJ OÐUR REYKDÆLA Opið alla virka daga kl. 10-12 og 13-16. Trompið er hærra ÞAÐ ER LÁN AÐ SKIPTA VIÐ SPARISJÓÐINN SPARISJÓÐUR REYKDÆLA Mb SÍMI 43110. SKINFAXI 29

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.