Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 30
---------------- Reykjavík - Nýtt ungmennafélag í Reykjavík Stofnað hefur verið nýtt ungmennafélag og það í Reykjavík, sem ber heitið “Vesturhlíð”. Þetta er ekkert venjulegt ungmennafélag. Það ber un- dirtitilinn Stuðningsfélag ungmennafélagshreyfingarinnar. Þetta félag er orðið um það bil mánaðargamalt og ber keim af öðru félagi sem finna má í Keflavík, Ungóklúbbnum. Sá klúbbur eða félag hefur verið starfandi í ein þrjú ár og hittast félagar þar, tæplega 30 manns, einu sinni í mánuði og rabba saman. Ungóklúbburinn hefur verið ungmennafélögunum í Keflavík og Njarðvík innan handar við ýmis sérverkefni. Slikt er einmitt eitt markmiðið með stofnun “Vesturhlíðar”. Egill Heiðar Gíslason er formaður “Vesturhlíðar”. Nafn félagsins er fengið af húsi því sem hýsir skrifstofu Ungmennafélags íslands við Öldugötuna í Reykjavík. Þar var félagið stofnað fyrir rúmum mánuði síðan. Egill var spurður spjörunum úr, fyrst um tilgang félagsins. “Hann er sá í fyrsta lagi, að ná til eldri félaga ungmennafélaganna. Þá á ég annars vegar við þá eldri ungmennafélaga sem eru ekki lcngur á fullu í starfi í stjómum félaganna. Eins á ég við venjulega félagsmenn sem hafa áhuga á að halda tengslum við hreyfinguna þó þeir séu að mestu hættir að starfa í ungmennafélögum. Þeirgætu þá stutt við bakið á hana með ýmsum hætti. Einnig er hugmyndin sú að styðja ungmennafélagshreyfinguna hér í Reykjavík, þetta er jú félagsskapur í Reykjavík. Ungmennafélagshreyfingin hefur hins vegar ekki verið mjög virk í Reykjavík. Hún hefurað mestu sóttstyrk sinn til fólks utan Reykjavíkur. Nú er það hins vegar svo að fjöldi fólks hefur flutt búferlum til höfuðborgarinnar og er það fólk á öllum aldri. Við vitum að fjöldi þessa fólks vill gjama halda einhverjum tengslum við hreyfinguna. Við viljum bjóða því að gera svo, í gegnum “Ves- turhlíð”. Eins getur fólk stofnað slík stuðningsfélög út um allt land, ef áhugi er fyrir hendi.” -Hvað með nánara starfssvið “Vesturhlíðar”? “Það er nú nokkuð í mótun enn sem komið er, ég get orðað það þannig, að þau verði ýmis verkefnin, nokkuð eftir hendinni. En fyrst og fremst verður félagið e.k. bakhjarl, eins og ég nefndi hér fyrr. -Er þessi fclagsskapur hugsaður sem “svar” hreyfingarinnar við Lions, Kiwanis og fleiri ámóta félögum? “Nei, ekki bcinlínis “svar”. Það er hins vegar ljóstað þcir sem nú em íLions Egill Heiðar Gíslason, formaður "Vesturhlfðar". og ámóta félögum eru margir hverjir gamlir ungmennafélagar. Nú má ckki misskilja orð mín. Eg bermikla virðingu fyrir þessum félögum. Þau hafa unnið mikið og óeigingjamt starf. En við ætlum ekki að fara í þeirra spor. Við ætlum okkur ekki að fara að starfa að einhverjum stórkostlegum fjáröflunum eins og mörg fyrmefndra félaga gera. Við ætlumst til dæmis ekki til að okkar fólk fari að selja pemr í hús og svo framvegis. Og ekki heldur að standa úli á velli með skeiðklukku í hendi á frjálsíþróttamóti. Ungmcnnafélögin eru svo víða orðin íþróttafélög fyrst og fremst. Á meðal okkar eru hins vegar margir gamlir félagsmála- garpar og margir höfum við áhuga á að auka og styrkja félagsmálastarfið innan hreyfingarinnar. Og við erum einnig margir sem emm hættir í íþróttum en höfum samt sem áður áhuga á ýmsu því sem fram fer í félögunum. En almennt séð er þetta fyrst og fremst hugsað fyrir menn sem vilja halda tengslum í einhverju formi við hreyfinguna án þess að verða teknir mcð húð og hári í einhver störf innan félaganna. -Þú segir menn. íslcnsk orð- notkun krefst þess að þú skýrir það aðeins nánar. -Já, með mönnum á ég við ég karla og konur, eins og stendur í orðabókinni. Líkt og í ungmennafélagshreyfingunni eiga menn að starfa saman í þessu félagi, konur og karlar. Við ætlum með öðrum orðum að viðhaldaþví jafnrétti kynjanna sem viðgengst í ungmennafélögunum” segir Egill Heiðar að lokum. ___________________________________IH SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.