Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 31
Allt fyrir Landsmótiö
Lífsreynslusaga Öldu
Helgadóttur af Landsmóti
á Akranesi
Alda Helgadóttir er ein
fjölmargra íslendinga sem hafa tekið
þátt í Landsmóti. Hún cr nú 42 ára, by'r
í Garðabænum og vinnur mikið að
félagsmálum, þar á meðal mikið fyrir
yngri kynslóðina. Hún hefur svolítið
sérkcnnilega og skemmtilega sögu að
segja af þátttöku í Landsmótinu á
Akranesi, 1978. Alda hefur orðið”
“Það var þannig að ég var á
ferðalagi, í sumarfríi, ásamt manni
mínum þegar haft var samband við mig
og ég beðin að keppa fyrir UMSK í
spjólkasti og með handboltaliðinu.
Reyndar var ég komin austur á firði en
samþykkti að reyna þetta. Þá vill það
svo til að á Breiðdalsheiðinni bilar
bíllinn og það var daginn áður en ég
átti að keppa. Okkur tókst nú saml að
komast á Egilsstaði. Þaðan ætlaði ég
að fljúga suður. Þá var okkur sagt að
vélin væri full, ekkert sæti laust. Nú
við mætum snemma daginn eftir út á
flugvöll til að athuga hvort það væri
nokkur möguleiki á að ég kæmist með
þann daginn. Það sat við það sama,
ekkert sæti laust. Og þetta var sem
sagt á laugardeginum, sama dag og ég
álli að kcppa.
...verður að komast á
Landsmót...
Ég sá því engan annan
möguleika en að hringja aftur suður og
segja þeim að það væri bara enginn
möguleiki að ég kæmist í tæka U'ð. Nú
það líður ckki nema rúmlega hálftími
þangað til hringt er aftur og tilkynnt í
Alda Helgadóttir ásamtþremurlitlum puttum áleikjanámskeiði í Garðabæ.
hátalara í flugstöðinni að Alda
Helgadóttir verði að komast með því
hún eigi að keppa á Landsmóti. Og
það er rýmkað til um eilt sæti og ég
kemst suður.
...mig vantaði skó.
Þegar ég mæti svo á flugvöllinn
í Reykjavík koma tveir menn á móti
mér og spyrja mig að nafni. Ég segi
þeim það. Þá segja þeir: “Það bíður
héma flugvél eftir þér, þú ált að fara
upp á Akranes. Ég dreif mig upp í
þessa næstu vél með þann litla
farangur sem ég var með. Málið var
hins vegar að mig vanlaði skó. En það
er samt flogið á Akranes. Og ég er
rétt nýlent þegar tilkynnt er að nú
hefjist spjótkastið. Ég rýk á næsta
mann og spyr hvaða númer hann noti
af skóm, fæ þá í hvelli og hendist inn á
völl.
IIt. <
"Þú ert rugluð!"
Við áttum að keppa sex umferöir
í spjótinu. Ég henti þrjár umferðir en þá
var handboltinn að byrja. Ég sagði bara
bless, ég yrði að fara að spila handbolla.
Ég var þá komin með lengsta kastið og
menn sögðu, “Þú ert rugluð!” Nei, nei,
í handboltann varð ég að fara og dreif í
því.
Allt endaði þetta síðan á því að
ég vann spjótið og við unnum hand-
boltann líka, UMSK!”
IH
SKINFAXI
31