Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1989, Síða 5

Skinfaxi - 01.02.1989, Síða 5
Molar Eiginkonur landsins sameinist. Eitthvað slíkt dettur manni í hug þegar gluggað er í Hugin sem er félagsblað Umf. Baldurs. Þar er lítil grein sem ber yfirskriftina Keðjubréf og hljóðar svo: „Þætti ekki öllum eiginkonum upplífgandi að fá svona keðjubréf: Kæra vinkona! Upphaf þessarar keðju er hugsjón um það að færa þreyttum eiginkonum ævarandi sáluhjálp og hamingju. Olíkt flestum öðrum keðjum kostar þessi ekkert, eða enga peninga. Þú sendireinfaldlegaeintakafþessubréfi til vinkvenna þinna (giftra) sem sitja í sömu súpunni og þú. Síðan pakkarðu manninum þínum inn og sendir hann til þeirrar konu sem efst er á listanum og bætir þínu nafni neðst. Þegar nafn þitt er komið efst á listann, þá munt þú fá 500 karlmenn heim til þín og sumir munu vera algjörtÆÐ/. Þú verður að hafa trú á keðjunni. Ein kona rauf keðjuna og fékk manninn sinn sendan til baka. Láttu það ekki henda þig! Þegar þetta bréf er ritað hafði ein vinkvenna minna fengið 377 karlmenn, hún var jarðsett í gær og það tók 7 líksnyrtimenn 36 klst. að ná brosinu af andliti hennar. (Athugaðu það.) Með vinkonukveðju P.S. Egítreka..Þú verðurað hafatrú á keðjunni. Gangi þér vel!!!" Norræn ungmennavika i Borgarfirði I júlí næstkomandi munu um hundrað manns alls staðar að af Norðurlöndunum safnast saman að Kleppjárnreykjum í Borgarfirði í eina viku á því sem nefnt er Ungmenna- vika NSU. Þetta er fyrirbæri sem haldið er hvert ár á einhverju Norðurlandanna af ungmenna- samtökum á Norðurlöndunum. Ungmennavika var síðast haldin hér á landi árið 1982, á Selfossi. Aldurs- takmörkin eru ekki háð neinum regl- Laugar í Dalasýslu. íþróttahúsið er til hœgri. Þetta hús gjörbreytir öllum aðstœðum á svœðinu. Ný íþróttahús - þrátt fyrir allt Veistu hvað eru til mörg íþróttahús ílandinuídag. Ekkiþað. Þaueru 117. Og fjölgar stöðugt, þrátt fyrir allt. Af þessum 117 húsum eru hins vegar aðeins 16með gólfflötinn 20x40 eða meir, þ.e.a.s. handboltahæft. Sem er algengasta viðmiðunin. íþróttahús með aðstöðu fyrir áhorfendur eru aðeins 14! Iþróttahús í byggingu er m.a. að finna í Stykkishólmi, á ísafirði, Blönduósi, Siglufirði, við Fjölbrautaskólann í Breiðholti í Reykjavík. I Garðabæ er verið að byggja stórt íþróttahús með burðarbitum úr límtré. Fram kom alvarlegur galli í bitunum þannig að taka verður þá niður. Gárungar hlynntir íslenskum iðnaði segja að það sé ekki skrýtið, umrætt límtré sé nefnilega fengið erlendis frá. Utlendingamir borga hins vegar allan skaðann. En fleiri hús eru á lokastigi eða tilbúin. Þar má nefna hús að Laugum í Dalasýslu sem sjálfsagt er búið að opna það nú Á Vopnafirði er einnig komið nýtt hús. Hús við Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi er á lokastigi, á Grundarfirði ereitt húsið langt komið. Einnig á Siglufirði. Hér eru ónefnd mörg hús sem eru í byggingu og gengur misvel að fjármagna. Eitt dæmið um þá sem ekkert eru að bíða eru Tálknfirðingar. Þeir hafa komið upp hálfu húsi og gengið illa að ljúka því vegnaerfiðleikaviðfjármögnun. Þar var því tekin sú ákvörðun að loka húsinu og taka helminginn í notkun. Húsið allt er 20x40 m á stærð... um en yfirleitt er á þessum vikum fólk á aldrinum 16 til 23 ára. Hugmyndin með Ungmenna- vikunni er fyrst og fremst sú að fólk kynnist öðru ungu fólki af einhverju Norðurlandanna. Komi saman í eina viku og kynnist ólfkum viðhorfum, þroski lífssýn sína og hafi um leið gaman af. í Borgarfirði verður ýmislegt um að vera. Fólkinu er skipt niður í hópa sem hver hefur sitt „verksvið”. Þeir sem hafa áhuga á og leggja stund á tónlist í einhverjum mæli, kynna þá tónlist sem þeir hafa áhuga á og kynnast um leið tónlist hinna Norðurlandanna. Annar hópur er leiklistarhópur, sá þriðji er fjölmiðlahópur, sá fjórði er útivistarhópur (reiðmennska, gönguferðir, íþróttir ofl.) Þá verða einnig skipulagður skoðunarferðir, skemmtikvöld og fleira. Áhugasamir hafi samband við UMFÍ. Skinfaxi 5

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.