Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1989, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.02.1989, Blaðsíða 18
Frjálsíþróttir Ingibjörg Ivarsdóttir í hástökkinu. Árangurerannars slakuren mér sýnisl að í stuttu grindinni megi vænta stórbætingar hjámörgum stúlknanna. Valdís Hallgrímsdóttir UMSE, keppti á ný og gæti hlaupið löngu grindina vel næsta sumar. Hástökk Þórdís Gísladóttir, var mjög sterk innanhúss. Hún gekk ekki heil til skógar í keppnum sumarsins og því vantaði toppinn utanhúss þó hún næði ágætum mótum. Elín Jóna bætti sig og er engin ástæða til annars en að vera bjartsýnn á framhaldið. Meðal þeirra stúlkna sem eru að stökkva 1,55 moghærraerörugglega aðfinna framtíðarstökkvara. Langstökk Árangur var lakari en oftast áður og greinin er í mikilli stöðnun. En skýringin er trúlega sú að lang- stökkvararnir eru einfaldlega ekki nógu fljótir. Stúlkur, hér þarf að bæta árangurinn verulega. Kúluvarp Guðbjörg Gylfadóttir, US AH, bætti sig ekki og ekki heldur næstu stúlkur. Framfarir hafa orðið miklar undan- farin ár, þróunin var ekki jafn ör síð- asta ár en þó er breiddin að aukast. Kringlukast Guðrún Ingólfsdóttir, USÚ, er í sérflokki ogerárangurhennarmjög athyglisverður, sérstaklega miðað við hvað hún hefur lítið einbeitt sér að keppni. Berglind Bjarnadóttir bætti sig verulega og jafnaði Islandsmetið í sínum aldursflokki. Guðbjörg Viðarsdóttir, HSK, bætti sig vel og nafna hennar Gylfadóttir virðist vera aðnábetra valdi ááhaldinu. Núerað sjá hvort einhverjar þeirra sigrist á 40 metra múrnum í sumar. Spjótkast íris Grönfeldt, UMSB, setti gott íslandsmet snemma á keppnis- tímabilinu en meiddist og náði sér ekki aftur á strik. Árangur næstu stúlkna er þokkalegur á íslenskan mælikvarða og Unnur Sigurðardóttir, UMFK, kastaði í fyrsta skipti yfir 40 metra. Sjöþraut Berglind Bjarnadóttir, er að ná tökum á flestum greinum og e.t.v. er sjöþrautin hennar framtíðargrein. Birgitta Guðjónsdóttir og Ingibjörg ívarsdóttir úr HSK sinntu ekki þrautinni eins og áður. Hér hefur verið fjallað um fjölmargt efnilegt frjálsíþróttafólk. Hverjir eru líklegastir til að bæta sig mest og ná lengst er erfitt að segja. í mjög mörgum greinum eru framfarir litlar. Takmörkinsem íþróttafólkiðsetursér eru oft á tíðum of lág og of fáir stunda kerfisbundna þjálfun til að ná hærri markmiðum. Dæmi þeirra sem náð hafa bestum árangri sanna hvað hægt eraðgera. Lærum af því og þá verða framfarirnar meiri. Með ósk um góðan árangur 1989. Gunnar Páll Jóakimsson 18 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.