Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1989, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.02.1989, Blaðsíða 6
Molar Verðlatinahafar sem hlutu sérstakar viðurkenningar ásamt formanni UMF. Selfoss, Birni Gíslasyni (aftast til vinstri). Hátíð á Selfossi Daginn fyrir síðustu áramót var haldin verðlaunahátíð Umf. Selfoss í veitingahúsinu Inghól áSelfossi. Þetta er í fjórða sinn sem slík hátíð fer fram og tókst hún mjög vel að þessu sinni, um tvö hundruð manns voru viðstaddir. Hátíðin er haldin í sam vinnu við íþrótta- og tómstundaráð Selfosskaupstaðar. Þeir sem voru tilnefndir úr deildum félagsins voru Gunnar Þór Gunnarsson sund Vésteinn Hafsteinsson frjálsar Steinunn Smáradóttir fimleikar Guðmundur Olafsson júdó Reynir Guðmundsson badm. Bergur H. Bergsson knattsp. Magnús Sigurðsson handb. Fyrst var afreksfólki í hverri íþróttagrein fyrir sig afhentar viðurkenningar. íþrótta- og tómstundaráð veitti einnig unglingum 15 ára og yngri verðlaun, einum í hverri grein. Fyrirtæki á Selfossi og víðar hafa verið dugleg að styðja við bakið á íþróttafólki og myndarlegar gjafir bárust frá mörgum þeirra til afreksmanna íþróttadeildanna. Má þar nefna íþróttavörur frá Sportbæ og Heilsusport á Selfossi og Hoffelli í Reykjavík. Sláturfélag Suðurlands gafafturhangikjötogbauniríveisiuna. Að síðustu var útnefndur íþróttamaður ársins hjá Ungmennafélagi Selfoss. Tveirurðu Tveir hrepptu titilinn Iþróttamaður ársins hjá Selfyssingum.þeir Magnús Sigurðsson, handknattleiksmaður (t.v. á myndinni) og Vésteinn Hafsteins- son.kringlukastari. ÞaðvarHafsteinn Þorvaldsson ,faðir Vésteins, sem veitti viðurkenningunni viðtöku þar sem Vésteinn dvelst nú í Svíþjóð. jafnir og efstir að stigum að þessu sinni. Það voru þeir Magnús Sigurðsson, handknattleiksmaður og Vésteinn Hafsteinsson, kringlukastari og Ólympíufari. Báðir fengu 46 stig. Það voru svo bankarnir á Selfossi sem buðu gestum upp á veitingar. Bændaglíman á HSK þingi Tími ársþinga héraðssambandanna er nú að ganga í garð. HSK er eitt fárra sem heldur tveggja daga þing og skemmtikvöld með. A þessu skemmtikvöldi fer fram Bændaglíma Suðurlands sem endurvakin var fyrir tveimur árum og nýtur mikilla vinsælda. Bændaglíman er til minningar um Sigurð Greipsson sem var mikill glímufrömuður og atorkusamur innan HSK. Á Skiptinemi frá Svíþjóð Sjálfsagt muna þeir sem lesa Skinfaxa eftir skiptinemunum sem hingað koma fyrir tilstuðlan þess sem nefnternorræn ungmennaskipti. Tvær stúlkurhafakomiðhingaðfráSvíþjóð og dvalist norður í Svarfaðadal og í Grímsnesinu á Suðurlandi. Nú er sú þriðja á leiðinni. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða Carinu Andersson frá Förslov í Svíþjóð sumargistingu ættu að hafa samband við UMFÍ á Öldugötunni í Reykjavík. Carina sem er 22 ára, hefur eins og hinar stúlkurnar tvær starfað í 4 H félögunum í Svíþjóð. Carina er áhugamanneskja um íþróttir og matargerð. Hún hefur frétt af náttúrufegurð landsins og menningu en einnig hefur hún frétt af góðu gengi Kvennalistans og langar nú að kynnast þessu öllu. Gert er ráð fyrir að hún komi hingað til lands íjúní. Svíþjóð í sumar? I árgefst unglingum frá lóáraaldri kostur á að fara til Norðurlandanna á svipaðan máta og Carina sem hér er nefnd að ofan, er væntanleg hingað til lands. Sásemferdvelstþásumarlangt í einhverju Norðurlandanna, stundar þar vinnu, í bæ eða sveit. Meðan á dvölinni stendur er lögð áhersla á að þátttakandi kynnist Svíþjóð sem best, sænsku þjóðlífi, menningu og einnig starfi 4 H félaganna. Og þá er bara að hafa samband við UMFI miðstöðina f Reykjavík eða þá ykkar héraðssamband. Bændaglímu keppa tveir flokkarog er glímt þar til aðeins einn stendur eftir ósigraður. I ár ætla glímumenn HSK 20 ára og yngri að skora á landsúrval þess aldursflokks að mæta sér. Héraðsþingið og Bændaglíman verður á Hvolsvelli 25. og 26. febrúar. 6 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.