Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1989, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.02.1989, Blaðsíða 15
Frjálsíþróttir Agœtar framfarir eru í langhlaupunum . UmfjöllunSkinfaxaumfrjálsíþróttir hefur jafnan verið vegleg og undirritaður mun gera sitt besta í að feta í fótspor þeirra ágætu manna sem fjallað hafa um afrekaskrá ársins undanfarin ár. A Olympíuári beinast augun enn frekaraðokkarafreksfólki. ÁranguráÓlympíuleikunum varekki samkvæmt björtustu vonum en í okkar afreksmönnum býr enn rneira. Þeir halda áfram þrotlausum æfingum og eiga örugglega eftir að uppskera samkvæmt því. Fjöldi efnilegra íþróttamanna geta fetað í fótspor þeirra og einhverjir þeirra sem hér verður fjallað um eiga eflaust eftir að vera þar á meðal. Kadar Spretthlaup Spretthlaupsgreinarkarlahafaverið í nokkurri lægð á íslandi undanfarin ár og breiddin lítil. Jón Arnar Magnússon, HSK, kom mjög sterkur upp í 100 metrunum í sumar. Hann náði besta árangri ársins og lofar sá árangur góðu urn framhaldið. Egill Eiðsson, UÍA, er í fremstu röð sem fyrr en hann varð fyrir meiðslunr á uppbyggingartímabilinu sem komu í veg fyrir framfarir. Gunnar Guðmundsson, UÍA, bætti sinn árangur í400 m og með áfranrhaldandi eljusemi við æfingar reikna ég með Gunnari um eða undir 48 sekúndum næsta sumar. Friðrik Uarsen, HSK, náði einnig athyglisverðum árangri og er framtíðarmaður í greininni. Millivegalengdir Guðmundur Sigurðsson, UMSK, náði ágætum árangri í 800 og 1500 m og bætti sinn fyrri árangur. Það voru honum örugglega vonbrigði að hlaupa ekki undir 1:50 í 800 m en til þess að ná því hefði hann þurft að komast í fleiri góð hlaup seinni hluta sumars. Brynjúlfur Hilmarsson, UÍA, virðist vera að koma upp aftur og náði ágætu 1500 m hlaupi í ágúst. Friðrik Larsen bætti sig vel í 800 m og lofar árangur hansgóðu. ArngrímurGuðmundsson, UDN, fór undir 2 mínútur í 800 m í fyrsta sinn. Arngrímur er óskólaður hlaupari en virðist hafa alla burði til að ná langt. Daníel Guðmundsson, USAH, bætti sig í 800 og 1500 m. Hann á að komast vel undir 4 nrínútna múrinn í sumar. Langhlaup Már Hermannsson, UMFK, bætti sig vel í 5000 m í landskeppninni við Luxemburg. Vonandi verður þessi bæting til að hvetja hann til dáða og til að stefna markvisst á Islandsmetin í 5000 og 10.000 m. Brynjúlfur hljóp gott 10.000 mhlaupíhaustogefhann einbeitir sér að lengri hlaupunum eru Islandsmetin í hættu. Daníel hljóp 3000 m mágætlega og hálfmaraþon- hlaup en virtist annars stefna meira á styttri vegalengdir á brautinni. GunnlaugurSkúlason, UMSS, komst í fremstu röð langhlaupara eftir að hafa hlaupið á 16:50 í 5000 m árið áður. Vonandi geta framfarir hans verið öðrum langhlaupurum hvatning. Grindahlaup Gísli Sigurðsson, UMSS, náði sér merkilega vel á strik í 110 m Skinfaxi 15

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.