Skinfaxi - 01.02.1989, Page 30
Sund
Englendingurinn
Conrad Cawley sem
tekið hefur við starfi
Guðmundar S. Harðar-
sonar sem landsliðs-
þjálfari í sundi, hugsar
hátt og langt fram í
tímann. Hann er með
tvær áætlanir í gangi sem
ná fram til ársins 2000
eða þar um bil.
Cawley var nýkominn frá
Danmörkuúrkeppnisferðþegarnáðist
í hann til viðtals. Cawley fór þangað
með fjóra sundmenn, Ragnheiði
Runólfsdóttur, Arnþór Ragnarsson,
Örnu Þórey Sveinbjörnsdóttur og
Gunnar Ársælsson. „Þetta gekk vel,
það voru svo sem ekki neinir
stórkostlegir tímar í sundgreinunum
sem við tókum þátt íen við þvíerekki
að búast. Það búast alltaf allir við að
sundfólkið syndi stöðugt hraðar og
hraðar. Þannig ganga hlutirnir hins
vegar ekki fyrir sig. Það fer allt eftir
árstíma og að hverju er stefnt.”
Cawley er ráðinn til fjögurra ára.
„Ég er ráðinn fram til Barcelona
(Ólympíuleikamir,1992). Svo sjáum
við til hvað gerist. Kannski verð ég
héráfram, þaðfereftiraðstæðum. En
jafnvel þó ég verði aðeins í fjögur ár
mundiégviljaskiljaeftirmigákveðna
þróun í íslenskum sundmálum, góða
sundmenn á alþjóðamælikvarða.
Áætlun um
ólympíuleika
En viðmiðumáætlanirokkarnú við
Ólympíuleikana 1992, 1996 og
eitthvaðþarframyfir. Égeraðleggja
upp 6 ára áætlun fyrir 8 til 9 ára gamla
krakka. Það má kalla það sex ára
áætlunina. í þeim hópi væri þá fólk
semgæti veriðþátttakendur 1996. Það
erdálítið vandamál hérálandi aðfólk
legguralltsittíeitthvaðeittoggleymir
þá að það er dagur eftir þennan dag. “
Önnur áætlunin sem Cawley er að
skipuleggja er að koma á einhvers
konar sundskóla fyrir 8 og 9 ára krakka
í Reykjavík og seinna meir um allt
landið. “Hérna er ekki um að ræða
hefðbundna þjálfun heldur mikið
frekar kennslu með þjálfunarívafi,
tvisvar í viku. Við ætlum að auglýsa
þetta og reyna að ná til okkar 16
efnilegustu krökkunum, jafnt skipt
milli kynja. Þetta væru krakkar sem
ekki væru gengnir í sundfélög. Við
munum kenna þeim í 2 ár og síðan
gætu þessir krakkar gengið í félögin
og farið að æfa þar.
Ástæðan fyrir þessu fyrirkomulagi
er sú vissa mín að stíf sundþjálfun
hafi mjög oft neikvæð áhrif á unga
krakka. Þegar krakkar byrja að æfa
ungir eru þeir oft orðnir hundleiðir á
þessu 18 ára gamlir.
Sundleiöi
Sjáðu til, sund getur oft verið heldur
leiðinleg íþrótt, fyrir þá sem eru
kannski stöðugt í 4. 5. eða 6. sæti.
Fyrir krakka sem eru góðir í sundi,
númer 1, erþaðalltafskemmtilegtog
30
Skinfaxi