Skinfaxi - 01.02.1991, Page 11
Iþróttaslys
Verður bótaréttur íþróttamanna felldur niður?
í síðasta Skinfaxa, 4. tbl. 1990, var
greint frá því að samkvæmt
drögum að nýjum lögum um
almannatryggingar er gert ráð
fyrir því að felld verði niður sú
slysatrygging, sem íþróttamenn
njóta eftir núgildandi lögum um
almannatryggingar.
Um 4000
íþróttaslys
arið 1989
Samkvæmt skýrslu Landlæknis-
embættisins voru skráð samtals 3263
íþróttaslys hér á landi á árinu 1989.
Skráningin nær þó aðeins til 70 %
þjóðarinnar og er því ekki óvarlegt að
áætla að um 4000 íþróttaslys hafi orðið
hér á landi á árinu 1989, þar sent leitað
hefur verið til læknis.
Sem betur fer eru þessi slys í flestum
tilfellum smávægileg. Sum eru þó
alvarlegri og leiða til varanlegrar eða
tímabundinnar örorku fyrir viðkomandi
íþróttamenn.
Greiðslur Tryggingastofnunar
rfkisins vegna íþróttaslysa námu
liðlega 15 milljónum krónaáárinu
1989. Þarafvoru tæpar7 milljónir
vegna sjúkraþjálfunar og
örorkulækninga, rúmar2 milljónir
vegna tannviðgerða og
dagpeningagreiðslur námu 3,4
milljónum króna.
Skýtur skökku
við
Þó að þessar upphæðir séu ekki
ýkja háar, er ljóst að ef bætur til
handa íþróttamönnum vegna
íþróttaslysa fást ekki greiddar af
almannatryggingum geta
íþróttamenn þurft að bera allan
skaðann sjálfir.
Það skýtur skökku við að á satna
tíma og verið er að hvetja til
almennrar íþróttaiðkunar, m.a.
Hver er réttarstaða slasaðra
íþróttamanna?
Fótboltadómurinn
Getur hlnn slasaöi beint
árofu sinni aö þcim sem
meiðslunum
olli?
Sf
af
heilbrigðisyfirvöldum, þá er í bígerð að
fellaniðurrétt fþróttamannatil slysabóta
úr almannatryggingum. Nær væri að
bæta réttarstöðuna livað slys varðar, en
draga úr henni. Hlýtur þetta að kalla á
hörð viðbrögð af hálfu þeirra sem láta
íþróttirog íþróttamálefni til sín taka.
íþróttamiðstöð íslands
Börn og foreldrar saman til æfinga á Laugarvatni
Á Laugarvatni er íþróttamiðstöð Islands,
þar sem boðið er upp á margskonar
þjónustu við íþróttamenn. Félaga-
samtök eða hópar geta tekið sig saman
og farið á Laugarvatn til þess að byggja
upp andlegan og líkamlegan styrk.
Síðan íþróttamiðstöðin hóf starfsemi
sína 18. október 1989 hafa um 7000
manns kontið og stundað margskonar
íþróttagreinar. Nýtt og fullbúið
íþróttahús er á staðnum, sundlaug,
golfvöllur, göngu- og skokkbrautir,
minni golt', báta- og seglbrettaleiga,
almenningsíþróttavellir með mörkum,
tennisvellir, þrekæfingasalur, náttúru-
legt gufubað og svo mætti lengi telja.
Möguleikar til íþróttaiðkunar og
útivistar eru óþrjótandi. Nú gefast
foreldrum auknir mög uleikar t i 1 að koma
og stunda einhverjar íþróttir um leið og
börnin eru í æfingabúðum.
Aðstaðan á Laugarvatni verður sífellt
vinsælli og hafa margir ungmenna-
félagar út um allt land nýtt sér hana.
Ungmennafélagar eru hvattir til að nota
aðstöðuna og panta tíma sent fyrst.
Litli íþróttaskólinn
Lögð áhersla á félagslega uppbyggingu
Eins og undanfarin sumur mun IMI
starfrækja sumarbúðir fyrir börn, þar
sem úrvals íþróttakennarar og
leiðbeinendur rnunu sjá um að börnin
kynnist sem flestum íþróttagreinum.
Búðirnareru fyrirbörn á aldrinum 10-12
ára og mikil áhersla er lögð á félagslega
uppbyggingu og að þau læri að vinna á
félagslegum grundvelli. Börnin taka
sérmargtskemmtilegtfyrirhendur, þau
fara á hestbak. fara í fjallgöngu, sigla
bátum og geta stundað minni golf.
Lögð er mikil áhersla á félagslega
uppbyggingu og að börnin læri að vinna
á félagslegum grundvelli. Þá konta
þekktir íþróttamenn í heimsókn.
Vikunámskeið hefjast 7. júní og haldin
verða þrjú námskeið í sumar.
Allar upplýsingar um dvöl í
Iþróttamiðstöð Islands á Laugarvatni
gefur Þráinn Hafsteinsson fram-
kvæmdastjóri í síma 98-61147 og
98-61151
Skinfaxi